Eyjamaðurinn Sigurður Arnar Magnússon hefur ákveðið að yfirgefa ÍBV og ganga til liðs við Val, en ÍBV féll úr Bestu deildinni í sumar. Samningur Sigurðar við Val gildir út tímabilið 2029.
Sigurður Arnar, sem er 27, lék upp alla yngri flokka ÍBV og hefur leikið með meistaraflokki félagsins frá árinu 2016. Hann lék einnig með KFS þar sem hann skoraði fjögur mörk í fimm leikjum.
Í tilkynningu frá ÍBV um brotthvarf Sigurðar segir meðal annars:
,,Sigurður varð lykilmaður í liði eftir veru hans hjá KFS árið 2017, en árið 2018 lék Sigurður í 29 leikjum, meðal annars í Evrópudeild UEFA. Sigurður hefur leikið 168 deildarleiki fyrir ÍBV og skilið allt eftir á vellinum í þeim leikjum, fyrir það verðum við hjá ÍBV ávallt þakklát.
ÍBV óskar Sigurði velfarnaðar í nýjum áskorunum og þakkar honum fyrir það ómetanlega framlag til ÍBV innan sem utan vallar.