
Kærunefnd útboðsmála hefur hafnað kröfum kærenda vegna útboðs Vestmannaeyjabæjar um rekstur og uppbyggingu heilsuræktaraðstöðu við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Niðurstaðan byggist á því að bindandi samningur hafði þegar verið gerður við Laugar ehf., sem reka World Class, en ekki á efnislegu mati á þeim útboðsskilmálum sem kærendur gerðu athugasemdir við.
Úrskurðurinn var kveðinn upp 26. október síðastliðinn. Kærendur voru Sporthöllin ehf., Eygló Egilsdóttir og Garðar Heiðar Eyjólfsson.
Eins og Eyjafréttir greindu frá í lok mars munaði aðeins 0,9 stigum á tilboðum Lauga og Sporthallarinnar. Þá vakti athygli hversu skömmum tíma eftir opnun tilboða ákvörðun um val á rekstraraðila var tekin.
Kæran barst kærunefnd útboðsmála 10. mars, tæpum tveimur vikum áður en tilboð voru opnuð 23. mars.
Kærendur kröfðust þess að þrjú ákvæði útboðsgagnanna yrðu felld úr gildi. Þau vörðuðu kröfu um að bjóðendur hefðu að lágmarki einn milljarð króna í eigið fé, kröfu um 5.000 einstaklinga með gild aðgangskort og valforsendur þar sem fjöldi heilsuræktarstöðva í rekstri gat gefið allt að 35 stig af 100 mögulegum.
Kærendur töldu skilyrðin takmarka samkeppni og veita stórum rekstraraðilum forskot. Þeir héldu því fram að kröfurnar gengju lengra en nauðsynlegt væri miðað við umfang verkefnisins.
Tilboðin voru opnuð 23. mars. Tveimur dögum síðar, 25. mars, samþykkti Vestmannaeyjabær tilboð Lauga ehf. og tilkynnti bjóðendum um niðurstöðuna.
Í tilkynningu til bjóðenda kom fram að þar sem um sérleyfissamning væri að ræða ætti biðtími samningsgerðar ekki við. Með samþykki tilboðsins væri því kominn á bindandi samningur milli aðila.
Þetta gerðist á meðan kæran vegna útboðsskilmálanna var enn til meðferðar hjá kærunefnd útboðsmála.
Kærunefnd útboðsmála hafnaði 14. apríl kröfu kærenda um að stöðva útboðsferlið tímabundið þar sem bindandi samningur hafði þegar komist á. Sama atriði réð niðurstöðu endanlegs úrskurðar.
Í niðurstöðukafla úrskurðarins vísar nefndin til 1. mgr. 114. gr. laga um opinber innkaup. Þar kemur fram að bindandi samningi verði ekki breytt eða hann felldur úr gildi þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt.
Nefndin taldi því ekki unnt að verða við kröfu kærenda um að fella umrædda útboðsskilmála úr gildi.
Kærunefndin tók þannig ekki efnislega afstöðu til þess hvort kröfurnar um milljarð króna í eigið fé, 5.000 korthafa og stigagjöf fyrir fjölda stöðva hefðu verið lögmætar.
Í úrskurðinum koma jafnframt fram skýringar Vestmannaeyjabæjar á fjárhagskröfum útboðsins.
Samkvæmt greinargerð sveitarfélagsins var áætlaður heildarkostnaður sérleyfishafa við verkefnið um 2,7 milljarðar króna. Þar af var gert ráð fyrir að um 1,5 milljarðar króna féllu til á fyrstu þremur árum samningsins.
Bærinn taldi því nauðsynlegt að gera ríkar kröfur til fjárhagslegs styrks bjóðenda svo tryggt væri að þeir gætu staðið undir uppbyggingu og rekstri heilsuræktarinnar.
Kærendur töldu hins vegar að krafa um milljarð króna í eigið fé væri of íþyngjandi og bentu meðal annars á möguleika á fjármögnun framkvæmda með blöndu lánsfjár og eigin fjár.
Birgir Örn Birgisson hjá Consensa, sem hafði umsjón með útboðinu fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar, bendir á í svari til Eyjafrétta að kærendur hafi ekki nýtt fyrirspurnartíma útboðsins til að óska eftir breytingum á þeim skilyrðum sem þeir síðar kærðu.
Hann segir að fyrirspurnartími í opinberum útboðum sé meðal annars ætlaður til samskipta milli mögulegra bjóðenda og verkkaupa um einstök ákvæði útboðsgagna.
Birgir Örn telur að verulegar líkur hefðu verið á að fallist hefði verið á lækkun kröfunnar um einn milljarð króna í eigið fé, hefði þess verið óskað á fyrirspurnartímanum. Hann tekur þó fram að þetta sé hans eigið mat.
Eygló Egilsdóttir og Garðar Heiðar Eyjólfsson hafna þeirri gagnrýni Birgis Arnar að þau hafi átt að óska eftir breytingum á útboðsskilmálunum áður en þau kærðu.
Í svari til Eyjafrétta segja þau að fyrra útboðsferlið og niðurstaða kærunefndarinnar í því máli hafi þegar grafið undan trausti þeirra til framkvæmdarinnar.
Þau telja að skilmálar nýja útboðsins hafi verið þannig úr garði gerðir að aðeins einn rekstraraðili uppfyllti þá og hafi því ákveðið að kæra þá strax.
„Það er ekki hlutverk okkar að endurhanna útboðsskilmála fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar,“ segja þau.
Þau gagnrýna jafnframt þá afstöðu Birgis Arnar að hugsanlega hefði verið fallist á lækkun fjárhagskröfunnar ef þess hefði verið óskað á fyrirspurnartímanum.
Eygló og Garðar lýsa vonbrigðum með niðurstöðu kærunefndar útboðsmála og telja hana sýna takmarkanir þess úrræðis sem kærunefndin er.
Þau leggja áherslu á að nefndin hafi ekki tekið efnislega afstöðu til lögmætis skilmálanna og að niðurstaðan feli því ekki í sér staðfestingu á því að rétt hafi verið staðið að útboðinu.
„Málinu er nú lokið hjá kærunefnd útboðsmála, með engri niðurstöðu. Því er hins vegar ekki lokið af okkar hálfu,“ segja þau.
Eyjafréttir óskuðu eftir nánari skýringum á því hvort þau hygðust grípa til frekari lagalegra úrræða eða annarra aðgerða vegna útboðsins. Svör við þeirri fyrirspurn höfðu ekki borist þegar fréttin var unnin.
Í tengslum við umfjöllun Eyjafrétta um útboðið hefur Birgir Örn Birgisson hjá Consensa einnig gert athugasemdir við umfjöllun um fyrri störf sín hjá World Class í aðsendri grein Eyglóar Egilsdóttur og Garðars Heiðars Eyjólfssonar, „Monopoly eða Matador“, sem birtist á Eyjafréttum í mars.
Birgir Örn segir rangt að hann hafi starfað hjá fyrirtækinu þar til fyrir nokkrum árum. Hann kveðst hafa kennt spinningtíma í verktöku samhliða námi og hætt þeirri kennslu árið 2012.
Greinarhöfundar hafa brugðist við athugasemdunum og beðist afsökunar á því ef þau fóru rangt með lengd starfsferils hans. Þau standa hins vegar við gagnrýni sína á hlutverk hans við framkvæmd útboðsins.
Eyjafréttir hafa nú birt sérstaka athugasemd ritstjórnar við upprunalegu greinina þar sem sjónarmið beggja aðila koma fram.
Þetta er í annað sinn sem útboð Vestmannaeyjabæjar vegna heilsuræktarinnar kemur til úrlausnar hjá kærunefnd útboðsmála.
Í fyrra málinu komst nefndin að þeirri niðurstöðu að Vestmannaeyjabær hefði brotið gegn lögum um opinber innkaup. Ákvörðun bæjarins um val á rekstraraðila var felld úr gildi og sveitarfélagið talið bótaskylt gagnvart kærendum vegna kostnaðar við þátttöku í útboðinu.
Í nýja málinu er niðurstaðan önnur. Kröfum kærenda var hafnað vegna þess að bindandi samningur hafði þegar verið gerður, án þess að nefndin tæki efnislega afstöðu til lögmætis hinna umdeildu útboðsskilmála.
Málskostnaður var látinn falla niður.
Þessu tengt:
Útboð Vestmannaeyjabær á uppbyggingu og rekstri heilsuræktar við Íþróttamiðstöðina hefur vakið töluverða athygli. Gögn sem Eyjafréttir hafa undir höndum sýna að aðeins munaði 0,9 stigum á tilboðum – á sama tíma og gagnrýni hefur komið fram á hraða og málsmeðferð við afgreiðslu málsins. 26 milljóna munur – en innan við eitt stig Tvö tilboð bárust […]