Bókakynningu Steinunnar Sigurðardóttur í Eldheimum, sem vera átti í dag, föstudag, hefur verið frestað til sunnudagsins 1. nóvember kl. 16:00.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipuleggjendum Safnahelgarinnar.
Tónleikar Hafsteins Þórólfssonar í Eldheimum verða hins vegar í kvöld kl. 20:30 eins og áætlað var. Þar syngur hann valdar Eyjaperlur og annað fallegt við undirleik Einars Scheving, Magnúsar R. Einarssonar og Þóris Ólafssonar.
Húsið opnar kl. 20:00 og eru öll velkomin meðan húsrúm leyfir.