250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
250 rúmmetra tankurinn hífður á sinn stað við FES, fiskimjölsverksmiðju Ísfélagsins. Myndir: Eyjafréttir/Óskar Pétur Friðriksson.

250 rúmmetra tankur var settur á sinn stað norðan við FES, fiskimjölsverksmiðju Ísfélagsins á fimmtudaginn. Tankurinn er ætlaður fyrir kælisjó frá skipi og á að stuðla að betra jafnvægi og aukinni stjórn á vinnsluferlinu.

Að sögn Guðlaugs Friðþórssonar, verkefnastjóra í Hrognahúsi og starfsmanns Miðstöðvarinnar, verður kælisjórinn síaður frá loðnunni og síðan settur aftur inn í kerfið eftir kúttun. Tilgangurinn er að ná jafnvægi og hafa betri stjórn á kerfinu og vinnsluferlinu.

Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, myndaði þegar tankurinn var settur á sinn stað.

Nýjustu fréttir

250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjaperlur í Eldheimum – myndir
Látinna minnst í allraheilagramessu í Landakirkju
Herjólfur aftur til Landeyjahafnar
ÍBV getur endurheimt annað sætið með sigri á Gróttu
Ásmundur les úr Sögum af Vellinum á Safnahelgi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.