Nemendaráð Barnaskólans stóð í dag fyrir hrekkjavökudiskói í Alþýðuhúsinu fyrir nemendur á yngsta stigi og miðstigi grunnskólans.
Fjölbreyttir búningar settu svip á samkomuna og greinilegt að hugmyndaflugið fékk að njóta sín. Þarna mátti meðal annars sjá nornahatta, beinagrindarbúninga, litríkar hárkollur og skrautlega andlitsmálningu.
Salurinn var skreyttur í anda hrekkjavökunnar, með risavöxnum beinagrindum, köngulóarvefjum og óhugnanlegum verum. Umgjörðin hæfði því tilefninu vel og brosandi gestir stilltu sér upp fyrir ljósmyndarann.
Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, leit við og festi hrekkjavökugleðina á mynd. Hér má sjá myndasyrpu hans frá diskóinu. Smella má á myndirnar til að opna þær í fullri upplausn.