Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, SASS, mótmælir auknum álögum ríkisvaldsins á atvinnulíf og samfélög á Suðurlandi. Þingið krefst þess að fyrirhuguðum skattahækkunum og öðrum íþyngjandi breytingum verði frestað þar til óháð mat á samanlögðum áhrifum þeirra liggur fyrir.
Þetta kemur fram í ályktun ársþingsins, sem haldið var á Hvolsvelli 29. og 30. október, að því er segir á vef SASS. Ályktunin ber yfirskriftina „Suðurland er ekki hraðbanki ríkissjóðs!“
Í ályktuninni er því haldið fram að um helming nýrra skatttekna ríkisins eigi að sækja í Suðurkjördæmi, þar sem rúmlega níu prósent landsmanna búi.
Meðal þess sem þingið gerir athugasemdir við eru náttúrupassi, hækkun virðisaukaskatts á baðlón, kílómetragjald og vegtollar. Þá er vísað til loftbrúar og óvissu um lagaumgjörð lagareldis.
Að mati ársþingsins geta þessar breytingar haft alvarleg áhrif á íbúa og atvinnulíf í kjördæminu, skert lífskjör og leitt til tekjutaps hjá sveitarfélögum og ríkissjóði. Þingið telur mótsögn felast í því að stjórnvöld hvetji til fjárfestinga og eflingar byggða en auki um leið álögur og óvissu í rekstri fyrirtækja.
Þingið krefst þess að ríkisstjórnin falli frá áformum um sérstaka gjaldtöku á Þingvöllum, við Gullfoss og Geysi. Þess í stað verði mótuð samræmd og sanngjörn stefna um gjaldtöku á ferðamannastöðum í eigu ríkisins á landsvísu.
Jafnframt verði fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á baðlón endurskoðuð og áhrif hennar á fjárfestingar, atvinnuuppbyggingu og samkeppnishæfni metin.
SASS leggur einnig áherslu á að tekjur ríkisins af ferðaþjónustu skili sér með sanngjörnum hætti til uppbyggingar innviða í þeim samfélögum þar sem álagið verður til.
Í ályktuninni er þess jafnframt krafist að ríkisstjórnin leggi fram frumvarp um lagareldi á vorþingi 2027, svo greininni verði tryggð skýr lagaumgjörð og fyrirsjáanleiki.
Þá skorar ársþingið á þingmenn Suðurkjördæmis að beita sér þvert á flokkslínur fyrir frestun fyrirhugaðra skattahækkana og annarra íþyngjandi breytinga meðan áhrif þeirra eru metin.
Þingið gagnrýnir skort á samráði við sveitarfélög og leggur áherslu á að þau komi að málum frá upphafi stefnumótunar. Sveitarfélög og atvinnulíf á Suðurlandi séu reiðubúin að axla sanngjarna ábyrgð á innviðauppbyggingu og sameiginlegri þjónustu, en skipting byrðanna verði að byggjast á jafnræði og fyrirsjáanleika.