Hrekkjavökustemning var á Bókasafni Vestmannaeyja í dag þegar gestum var boðið að spreyta sig í hræðilegu völundarhúsi og hlýða á skuggalegar sögur í myrkri.
Safnið hafði verið klætt í hrekkjavökubúning og ýmislegt var í boði fyrir gesti. Þeir hugrökkustu gátu lagt leið sína í gegnum hrekkjavökuvölundarhús í anddyrinu og klukkan 13 hófst sögustund í myrkri. Þá voru hrekkjavökumyndir og bókamerki í boði til að lita.
Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, leit við á safninu í dag og myndaði hrekkjavökufjörið. Myndir hans má sjá hér með fréttinni.
Hrekkjavökudagskránni er þó ekki lokið því Bókasafnið tekur á móti gestum í grikk eða gott milli klukkan 18 og 20 í kvöld.
„Við bjóðum öll velkomin … ef þið þorið,“ segir í kveðju frá safninu, þar sem öllum er jafnframt óskað gleðilegrar hrekkjavöku.