Eyjamaðurinn Erlingur Richardsson heldur áfram að gera góða hluti með Minden í þýsku B-deildinni í handbolta. Liðið vann sannfærandi sjö marka sigur á Ferndorf, 27-20, á heimavelli í dag.
Þetta var fimmti sigur Minden í röð undir stjórn Erlings, en hann tók við sem aðalþjálfari liðsins í lok september. Áður en Erlingur tók við hafði Minden aðeins unnið einn leik, gert eitt jafntefli og tapað þremur.
Með sigrinum fór Minden upp í sjötta sæti deildarinnar með 13 stig og er aðeins fimm stigum á eftir toppliðinu Elbflorenz. Ferndorf situr hins vegar í 11. sæti með átta stig.