Karlalið ÍBV tók á móti Stjörnunni í 9. umferð Olís deildar karla í Vestmannaeyjum í dag. Eyjamenn tryggðu sér þar mikilvæg stig með fimm marka sigri, 31–26
Stjörnumenn byrjuðu leikinn betur og komust í 2-4 á upphafsmínútunum. Eyjamenn svöruðu hins vegar fljótt fyrir sig og náðu undirtökunum. Þeir höfðu náð þriggja marka forskoti, 11-8, þegar stundarfjórðungur var liðinn af leiknum.
Stjörnumenn náðu þó að snúa taflinu við á ný og komust yfir, 12-13, þegar fimm mínútur voru til hálfleiks. Gestirnir héldu forystunni út hálfleikinn og leiddu með tveimur mörkum, 16-18, þegar gengið var til búningsherbergja.
Eyjamenn mættu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og náðu fljótt forystunni á ný. ÍBV skoraði sjö mörk gegn einu á góðum kafla og hafði komið sér í þriggja marka forystu, 22-19, þegar tíu mínútur voru liðnar af hálfleiknum.
Stjörnumenn náðu hins vegar að vinna upp forskot heimamanna og jöfnuðu metin í 24–24 þegar þrettán mínútur voru til leiksloka. Eyjamenn reyndust sterkari á lokakafla leiksins og höfðu tveggja marka forskot, 28–26, þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir. Þeir bættu síðan enn við forskotið og urðu lokatölur leiksins 31–26. Fimm marka heimasigur ÍBV því staðreynd.
Atli Steinn Arnarson fór fyrir Eyjamönnum og átti stórleik. Hann skoraði 12 af 15 mörkum ÍBV í síðari hálfleik og alls 14 mörk í leiknum, sem gerði hann að markahæsta leikmanni vallarins. Sigurmundur Gísli varði fimm skot í marki ÍBV og Petar Jokanovic tvö.
Með sigrinum er ÍBV áfram í 6. sæti deildarinnar með 11 stig. Stjarnan situr í 9. sæti með fimm stig.
Mörk ÍBV: Atli Steinn Arnarson 14, Magnús Dagur Jónatansson 5, Kristófer Ísak Bárðarson 4, Sveinn José Rivera 4, Heimir Halldór Sigurjónsson 2, Andri Magnússon 1, Jason Stefánsson 1.