Handverks- og vörumarkaður í Höllinni
Handverks- og vörumarkaður Hallarinnar verður haldinn um helgina.

Handverks- og vörumarkaður Hallarinnar verður haldinn um helgina líkt og gert hefur verið undanfarin ár í nóvember. Markaðurinn verður opinn frá kl 13-17, laugardag og sunnudag og gefst gestum tækifæri til að kynna sér fjölbreytt úrval af handverki og vörum.

Markaðurinn hefur verið haldinn síðustu ár við góðar undirtektir og hefur jafnan verið boðið upp á fjölbreyttan varning svo sem skartgripi, fatnað, myndir, kerti, jólaskraut, snyrtivörur og ýmsar gjafavörur.

Áhersla er lögð á sölu handverks og vara en markaðurinn er ekki ætlaður fyrir sölu á notuðum munum.

Líkt og undanfarin ár verður einnig boðið upp á kaffihúsastemningu á pallinum í Höllinni þar sem hægt verður að kaupa vöfflur og annað góðgæti.

Nýjustu fréttir

Handverks- og vörumarkaður í Höllinni
Steinunn sló botninn í Safnahelgina með húmor og frásagnargleði
Truflanir hjá Microsoft hafa áhrif
Jónína Einarsdóttir 100 ára
Rabbi á Dala-Rafni kvaddur – Ein vertíð stóð ævina á enda
Sjö marka tap hjá ÍBV gegn Aftureldingu
Nýr meistari Vöruhúsdeildarinnar verður krýndur 21. nóvember
Bæjaryfirvöld hafna samantekt úr opnu bókhaldi – án leiðréttingar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.