Tilnefningin mikilvæg viðurkenning og hvatning
Hvatningarverðlaun Sjávarútvegsráðstefnunnar og TM 2026
Grettir Jóhannesson tók við viðurkenningu fyrir hönd Rauðátunnar ehf. á Sjávarútvegsráðstefnunni. Verkefnið var eitt þriggja sem tilnefnd voru til Hvatningarverðlauna ráðstefnunnar.
Omar Betri
Ómar
Garðarsson

Rauðátan ehf. var meðal þriggja fyrirtækja sem tilnefnd voru til Hvatningarverðlauna Sjávarútvegsráðstefnunnar og TM 2026 – Hörður Baldvinsson, frumkvöðull verkefnisins, segir tilnefninguna mikilvæga viðurkenningu og hvatningu – Þakkar Háskóla Íslands, Matís og Hafrannsóknastofnun fyrir samstarfið – Nokkrir aðilar hafa sýnt verkefninu áhuga – Grettir Jóhannesson tók við viðurkenningunni en Hörður kynnti verkefnið í Noregi. 

Rauðátuverkefnið í Vestmannaeyjum hlaut mikilvæga viðurkenningu þegar Rauðátan ehf. var meðal þriggja fyrirtækja sem tilnefnd voru til Hvatningarverðlauna Sjávarútvegsráðstefnunnar og TM 2026. Að baki verkefninu er margra ára rannsóknar- og þróunarstarf undir forystu Harðar Baldvinssonar, framkvæmdastjóra Þekkingarseturs Vestmannaeyja. Hörður segir tilnefninguna bæði viðurkenningu og hvatningu til áframhalds. Hann þakkar sérstaklega Háskóla Íslands og Hafrannsóknastofnun fyrir samstarfið og segir nokkra aðila hafa sýnt verkefninu áhuga. 

Verðlaunin voru afhent á Sjávarútvegsráðstefnunni 5. nóvember síðastliðinn. Þrjú fyrirtæki voru tilnefnd: Rauðátan ehf. fyrir rannsóknir á sjálfbærri nýtingu rauðátu, Nanna Lín fyrir þróun fiskileðurs úr laxa- og þorskroði og Marimedx, sem þróar lækningalausnir úr íslenskum þörungum til sárameðferðar og endurnýjunar vefja. Marimedx hlaut Hvatningarverðlaunin og tók Svava Kristinsdóttir, stofnandi og forstjóri fyrirtækisins, við þeim. 

Grettir Jóhannesson, sem tekur við forstöðu Rannsóknasetursins af Herði um áramótin, var viðstaddur afhendinguna og tók við viðurkenningu fyrir hönd Rauðátunnar. Hörður var þá staddur í Tromsø í Noregi þar sem hann hélt fyrirlestur um verkefnið og kynnti möguleika á nýtingu rauðátu við Ísland. 

Viðurkenning á margra ára starfi 

Hörður er ánægður með tilnefninguna og segir hana staðfestingu á þeim árangri sem náðst hefur. „Ég er auðvitað mjög ánægður með þessa tilnefningu. Hún er mikil viðurkenning fyrir verkefnið og alla þá sem hafa komið að því undanfarin ár. Jafnframt er hún okkur hvatning til að halda áfram,“ segir Hörður. 

Hann leggur áherslu á að árangurinn sé afrakstur samstarfs margra aðila og þakkar sérstaklega Háskóla Íslands og Hafrannsóknastofnun fyrir þeirra framlag. „Þetta verkefni hefði aldrei komist svona langt án þess góða samstarfs sem við höfum átt við Háskóla Íslands og Hafrannsóknastofnun. Þar hefur verið unnið mikið og mikilvægt starf og ég vil sérstaklega þakka öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóg.“ 

Rauðátuverkefnið hefur þróast frá hugmynd að umfangsmiklum rannsóknum á veiðum, vinnslu og nýtingu rauðátu. Mikilvægur áfangi náðist árið 2024 þegar rannsóknarleiðangrar við Suðurströndina sýndu að hægt væri að veiða rauðátuna með sérhæfðum búnaði og mjög litlum meðafla við þær aðstæður sem prófaðar voru. „Þarna erum við að sjá drauminn rætast eftir fjögurra ára þrotlausa vinnu,“ sagði Hörður í samtali við Eyjafréttir í júní það ár. 

Áhugi gefur góð fyrirheit 

Hörður segir ánægjulegt að nokkrir aðilar hafi sýnt verkefninu áhuga. Það geti skipt miklu máli þegar kemur að næstu skrefum, fjármögnun og mögulegri uppbyggingu atvinnustarfsemi. „Það er ánægjulegt að finna fyrir þessum áhuga. Nokkrir aðilar hafa haft samband og vilja kynna sér verkefnið betur. Það sýnir okkur að fleiri sjá möguleikana sem við höfum verið að vinna með undanfarin ár,“ segir Hörður. 

Hann var staddur í Tromsø þegar verðlaunin voru afhent og hélt þar fyrirlestur um rannsóknirnar og þann árangur sem náðst hefur. Norðmenn hafa þegar byggt upp starfsemi í kringum veiðar og vinnslu rauðátu og sú reynsla hefur nýst við þróun verkefnisins í Vestmannaeyjum. 

Ný tækifæri fyrir Vestmannaeyjar 

Rauðátan er rík af próteinum, verðmætum fitusýrum og náttúrulegum litarefnum sem nýta má meðal annars í laxafóður, fæðubótarefni og líftækniafurðir. Einnig eru til rannsóknar möguleikar á nýtingu efna úr rauðátu við lyfjaþróun, meðal annars í tengslum við sykursýki af tegund 2. 

Hafrannsóknastofnun hefur metið að mögulegar árlegar veiðar gætu numið allt að 59 þúsund tonnum en stofninn er talinn vera um 5 milljónir tonna. Takist að þróa sjálfbærar og hagkvæmar veiðar og vinnslu gæti rauðátan lagt grunn að nýrri atvinnugrein í Vestmannaeyjum. 

„Við erum búin að leggja mikla vinnu í þetta verkefni og nú er mikilvægt að halda áfram. Möguleikarnir eru fjölbreyttir, bæði í fóðurframleiðslu og vinnslu verðmætra afurða. Það væri auðvitað sérstaklega ánægjulegt ef þessi vinna gæti á endanum skapað ný störf og aukin verðmæti í Vestmannaeyjum,“ segir Hörður. 

Þótt Hvatningarverðlaunin hafi að þessu sinni farið til Marimedx er tilnefning Rauðátunnar mikil viðurkenning á frumkvöðlastarfi Harðar og samstarfsfólks hans. Hún undirstrikar jafnframt þau tækifæri sem felast í rannsóknum og nýsköpun í Vestmannaeyjum. 

Verkefnið, sem hófst með hugmynd um að nýta rauðátu til að bæta litinn á lundagoggi, gæti þannig orðið grunnurinn að nýrri atvinnugrein í Eyjum.

Grettir Jóhannesson ásamt sigurvegurum Hvatningarverðlauna Sjávarútvegsráðstefnunnar 2026. Svava Kristinsdóttir, forstjóri og stofnandi Marimedx er þriðja frá vinstri.

Nýjustu fréttir

Tilnefningin mikilvæg viðurkenning og hvatning
Miðflokkurinn lagði til tveggja vikna sumarlokun leikskólanna
Fórnarlamba umferðarslysa minnst í Eyjum á morgun
Eyjakonur geta jafnað Hauka á toppnum
Hundrað ára afmæli Jónínu í myndum
Sumarlokanir leikskólanna í Eyjum liggja fyrir
Futsal mót knattspyrnudeildar ÍBV fer fram á morgun
Fyrsti kjarasamningur sjómanna á smábátum frá 2012
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.