Vestmannaey VE og Bergey VE landa samtals um 123 tonnum í Neskaupstað í dag. Birtingur NK landar einnig í heimahöfn og er afli togaranna þriggja samtals um 168 tonn. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.
Öll skipin hófu veiðar á austurmiðum en þurftu að færa sig suður fyrir land vegna brælu. Þau sneru aftur austur þegar veðrið gekk niður og luku veiðiferðinni þar.
Vestmannaey kom að landi með um 60 tonn, að mestu þorsk. Egill Guðni Guðnason skipstjóri segir að aðeins tveir dagar hafi verið þokkalegir til veiða hvað veður varðaði og að helmingur túrsins hafi farið í siglingu. Skipið hóf og lauk veiðum á Gerpisflakinu en veiddi einnig við Ingólfshöfða og í Breiðamerkurdýpi.
Afli Bergeyjar var um 63 tonn. Ragnar Waage Pálmason skipstjóri segir að veðrið hafi tekið sinn toll. „Svona túrar eru dálítið þreytandi en þetta fylgir þessum árstíma,“ segir hann í frétt Síldarvinnslunnar.
Birtingur landar 45 tonnum, að mestu þorski. Einar Ólafur Ágústsson skipstjóri segir að helmingur túrsins hafi farið í siglingar milli miða og að lítið hafi fengist við Ingólfshöfða.
„Reyndir menn sögðu að ýsan kæmi þegar færi að grána í fjöll en hún lætur enn bíða eftir sér,“ segir Einar Ólafur.