ÍBV úr leik í Powerade bikarnum eftir tap gegn Stjörnunni
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í handbolta mætti Stjörnunni í 16-liða úrslitum Powerade bikars kvenna í Garðabænum í kvöld. Stjarnan hafði betur, 43-40, eftir tvíframlengdan leik og tryggði sér þar með sæti í 8-liða úrslitum.

Stjörnukonur byrjuðu leikinn af krafti og náðu fljótlega fimm marka forskoti, 1-6, eftir rúmlega tíu mínútna leik. Eyjakonur unnu sig hins vegar jafnt og þétt inn í leikinn og höfðu minnkað muninn í eitt mark, 10-9, þegar um 20 mínútur voru liðnar. Staðan var jöfn í hálfleik, 13-13.

Jafnræði var með liðunum á upphafsmínútum síðari hálfleiks og var staðan enn jöfn, 17-17, eftir tíu mínútna leik. Stjörnukonur náðu þó undirtökunum á ný og komust tveimur mörkum yfir, 19-17. Þegar tólf mínútur voru til leiksloka hafði Stjarnan aukið forskotið í þrjú mörk, 22-19.

Æsispennandi lokamínútur

Lokakafli venjulegs leiktíma var æsispennandi. Eyjakonur náðu að jafna metin, 24-24, þegar sjö mínútur voru til leiksloka. ÍBV hafði þá snúið leiknum sér í hag og leiddi með einu marki, 28-29, þegar rúm mínúta var eftir. Stjarnan jafnaði hins vegar metin í 29-29 úr vítakasti þegar 30 sekúndur voru eftir. Eyjakonum tókst ekki að skora sigurmarkið í lokasókn sinni og því þurfti að grípa til framlengingar.

Framlengingin var afar jöfn og leiddi ÍBV 30-31 í fyrri hluta hennar. ÍBV var yfir, 31-32 í síðari hálfleik en Stjarnan jafnaði í 32-32 þegar 30 sekúndur voru eftir. Eyjakonum tókst ekki að skora sigurmarkið og því þurfti að framlengja öðru sinni. 

Stjörnukonur reyndust sterkari í síðari framlengingunni og tryggðu sér að lokum þriggja marka sigur, 43-40.

Amelía Dís Einarsdóttir og Sandra Erlingsdóttir voru markahæstar hjá ÍBV með 11 mörk hvor. Hjá Stjörnunni skoruðu Inga Maria Roysdóttir og Sara Rún Gísladóttir einnig 11 mörk hvor. Ólöf Maren Bjarnadóttir varði átta skot í marki ÍBV og Cornelia Linnea Hermansen sex.

Mörk ÍBV: Amelía Dís Einarsdóttir 11 mörk, Sandra Erlingsdóttir 11, Andrea Jacobsen 5,  Ásta Björt Júlíusdóttir 4, Agnes Lilja Styrmisdóttir 3, Ásdís Halla Hjarðar 2, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 2, Cornelia Linnea Hermansen 1, Klara Káradóttir 1.

Úrslit kvöldsins í 16-liða úrslitum:

FH 22 – 37 HK

Víkingur R. 25 – 43 Selfoss

Fjölnir 24 – 37 KA/Þór

Stjarnan 43 – 40 ÍBV

 

Nýjustu fréttir

ÍBV úr leik í Powerade bikarnum eftir tap gegn Stjörnunni
Vestmannaey og Bergey landa í Neskaupstað eftir erfiðar veiðiferðir
Ísfélagið veiddi tæp 18.000 tonn af norsk-íslenskri síld
Fiskur fjórum sinnum í viku á Breka VE
Styrktarsjóður Landakirkju veitir aðstoð fyrir jólin
Fjölgun brota endurspegli aukið ofbeldi
Eyjakonur mæta Stjörnunni í bikarslag í kvöld
Heimir og Írar fara í umspil í Þjóðadeildinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.