Karlalið ÍBV í handbolta mátti þola stórt tap gegn Fram þegar liðin mættust í eina leik kvöldsins í 11. umferð Olís deildar karla í Eyjum í kvöld. Lokatölur urðu 21-35, Fram í vil.
Jafnræði var með liðunum á fyrstu mínútum leiksins og var staðan jöfn, 4-4, eftir tæplega sjö mínútna leik. Framarar tóku þá að síga fram úr Eyjamönnum og höfðu náð fimm marka forskoti, 8-13, eftir 20 mínútna leik. Fram leiddi með átta mörkum í hálfleik, 12-20.
Framarar voru með öll völd á vellinum í síðari hálfleik og höfðu náð tólf marka forskoti, 15-27, þegar stundarfjórðungur var eftir. Mest varð forskotið 17 mörk og lauk leiknum með öruggum 14 marka sigri Fram, 21-35.
Með sigrinum fór Fram upp fyrir ÍBV í deildinni. Bæði lið eru með tíu stig, en ÍBV situr nú í 7. sæti og Fram í því sjötta.
Dagur Arnarsson og Sveinn José Rivera voru markahæstir hjá ÍBV með fjögur mörk hvor. Ívar Logi Styrmisson hjá Fram skoraði flest mörk allra, sjö talsins. Petar Jokanovic varði níu skot í marki Eyjamanna og Sigurmundur Gísli Unnarsson eitt.
Mörk ÍBV: Dagur Arnarsson 4, Sveinn José Rivera 4, Atli Steinn Arnarson 3, Kristófer Ísak Bárðarson 3, Gary Emanuel Phillips 2, Andri Magnússon 1, Daníel Þór Ingason 1, Heimir Halldór Sigurjónsson 1, Jason Stefánsson 1