
Sr. Viðar Stefánsson hélt burtfarartónleika á Háaloftinu í Höllinni í gærkvöldi. Með tónleikunum lauk hann námi í trommuslætti við Tónlistarskóla Vestmannaeyja.
Viðar hefur stundað námið undanfarin ár undir leiðsögn Birgis Benediktssonar Nielsen og lauk framhaldsprófi í vor. Samkvæmt tónlistarskólanum er hann fyrsti nemandi skólans til að þreyta framhaldspróf á trommusett.
Burtfarartónleikar eru hluti af námslokum nemenda sem ljúka framhaldsprófi við skólann. Með Viðari á tónleikunum lék hljómsveit skipuð nemendum, kennurum og velunnurum Tónlistarskóla Vestmannaeyja.
Óskar P. Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, var á Háaloftinu og tók myndir á tónleikunum.