Allar rósir upp hann tætir og upp hann rífur sérhvern stein

�?að er er eins gott fyrir yfirvöld í Vestmannaeyjum að vera ekkert að þvælast fyrir honum Bergi, bakara. Nýlega settu bæjarstarfsmenn blómabeð rétt fyrir utan bakaríið. Hann kom svo sjálfur og sparaði sér dýra tíma í líkamsrækt með því að rífa upp hleðsluna, enda algjör fíflaskapur að vera að setja upp blómabeð um hávetur.

Frosti, sem er yfirmaður umhverfissviðs er lítt hrifinn, en Bergur segist hafa fengið frábær viðbrögð hjá bæjarbúum, svo nú getur maður búist við því að Vestmannaeyingar muni taka til hendinni og rífa upp hin og þessi mannvirki, sem þeim finnst vera fyrir.

�?egar piparkökur bakast,
kökugerðarmaður tekur,
fyrst af öllu æðiskastið.
Upp hann rífur sérhvern stein.

Allar rósir upp hann tætir,
yfirvöldin sífellt grætir.
Fólk í Eyjum heyrir Frosta
furðu lostinn, rek�? upp vein.

Nýjustu fréttir

Fræðsla um átraskanir í Landakirkju
Stefnt að þrýstiprófunum á NSL-4 í vikunni
Gagnasöfnun vegna fýsileikamats Eyjaganga lokið
Opið fræðsluerindi um heilabilun og samskipti
Tekjur Vestmannaeyjabæjar langt umfram áætlun
Ný stjórn SASS stillir saman strengi
Sara Dröfn snýr heim í ÍBV
Styrkleikarnir fóru fram í annað sinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.