Hákon markahæstur í stórsigri
Hákon Daði

Ísland gjörsigraði lið Litháen, 36-20, í fyrsta leik liðsins í undankeppni EM 2022 í handbolta í tómlegri Laugardalshöllinni í kvöld. Staðan í hálfleik var 19-10. Hákon Daði Styrmisson leikmaður ÍBV var markahæstur í íslenska liðinu en Hákon lék sinn sjötta A-landsleik í kvöld og nýtti tækifærið vel. Hákon skoraði átta mörk úr jafn mörgum skotum, þar af sjö í fyrri hálfleik. Íslenska liðið leiddi allan tímann og hafði mikla yfirburði.

Mörk Íslands í leiknum:
Hákon Daði Styrmisson – 8
Arnór Þór Gunnarsson – 5 / 2
Elvar Örn Jónsson – 5
Viggó Kristjánsson – 4
Aron Pálmarsson – 3
Óðinn Þór Ríkharðsson – 2
Janus Daði Smárason – 2
Ýmir Örn Gíslason – 2
Arnar Freyr Arnarsson – 2
Gísli Þorgeir Kristjánsson – 1
Orri Freyr Þorkelsson – 1
Magnús Óli Magnússon – 1

Nýjustu fréttir

Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.