Páll Árnason múrari, minning
15. janúar, 2021

Palli Árna múrari var innangirðingarmaður frá Vesturhúsum en lengst af bjó á Auðsstöðum við Brekastíg. Palli var 15 ára þegar faðir hans lést og móðir hans þá sjúklingur og hann sendur í fóstur hjá móðursystur sinni á Vesturhúsum. Þar voru fyrir 16 börn og einn munnur í viðbót ekki málið frekar en að 6 frændur deildu litlu herbergi og öllu varð að deila jafnt. Palli var vel af Guði gerður, glæsimenni, hár á velli og dökkur á brún og brá. Hann var gæddur góðum hæfileikum sem hann ræktaði með sér af dugnaði sem hann var þekktur af til allra verka. Tónlistina fékk hann í vöggugjöf og spilaði eins og engill á píanó og fáir Eyjamenn höfðu roð við honum við skákborðið. Hann var glaðsinna prúðmenni og sögumaður góður. Sögustundirnar af Ása í bæ, samferðamönnum hans og snillingum sem voru vinir hans voru kostulegar stundir, mikið hlegið og vísum slegið fram á bæði borð eins og enginn væri morgundagurinn og þeir runnu stundum saman dagur og nótt. Í slíkum veltingi naut skemmtileg röddin, hávær hláturinn og listræn líkamastjáning sín vel og hann hnippti hvað eftir annað fast í öxlina á mér og sagði, hefur þú heyrt þetta, hefur þú heyrt þetta! Palli var handlaginn til allra verka, meistari í múr- og netagerð og sjómaður á trillunni sinni Árna Páls VE svo sjaldan féll honum verk úr hendi. Palli var líka snöggur til þegar einhver þurfti aðstoðar við og ef hann hefði metið lífsgæðin eingöngu eftir veraldlegum gæðum hefðu fleiri  fengið reikninga fyrir verkin sem hann vann en raun varð á. Hann var ríkari af hjálpsemi en peningum og nú á kveðjustund stendur góðmennskan upp úr. Palli múrari var samt alltaf að. Sinnti netagerð hjá Ingólfi á vetrarvertíðum, gerði út Árna Páls á sumrin og múraði inn á milli og það sem eftir var ársins. Það var samt alltaf tími til að taka eitt lag á píanóið, eina bröndótta skák við Stebba í Höfðanum og svo var hann svo andskoti skemmtilegur í góðra vina hópi. Það var áfall þegar hann greindist með parkinson 52 ára gamall sem reyndist honum erfiður förunautur. Það var mögnuð saga hvernig hann tókst við veikindin. Ég og afastrákarnir okkar löbbuðum með honum á Hraunbúðir og þá kom sér vel reynslan að stíga ölduna á trillunni í kröppum sjó. Þegar verst lét var varla stætt. Og þó ég héldi að hann væri að falla fyrir borð náði hann alltaf að stíga ölduna og við náðum inn í herbergið hans í kröppum dansi. Þar settist hann við píanóið og náði með erfiðismunum að fletta nótnabókinni. Þarna náði hugur og hönd aftur sambandi og Palli sló hinn sanna hljóm og spilað eins og engill hvert lagið á fætur örðu. Ógleymanleg stund fyrir okkur peyjana. Magnað hvað tónlistinn sló parkinson alveg út meðan fingurnir snertu nótnaborðið. En lífstóninn þagnaði eftir 23ja ára strögl við sjúkdóminn og Palli Árna hélt í sinn síðasta róður. Ég og afastrákarnir okkar eigum góðar minningar um afa Palla á Auðsstöðum. Hann var Eyjamaður af bestu gerð.

Við Sigga vottum tengdasyni okkar Guðmundi Árna, Maríu Höbbý og strákunum, Kristni og fjölskyldunni samúð.

Sigríður og Ásmundur Friðriksson.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland

Foreldrar

Laura Vähätalo og Orri Arnórsson
76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn

Foreldrar

Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson
Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon
Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson
462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.
Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.

Foreldrar

Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.
Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir
Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson
F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir
Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.
E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes

Foreldrar

Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson
Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Todor Hristov og Marta Möller
Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík

Foreldrar

Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson
Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani
IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi

Foreldrar

Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason
tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir
nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson
jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir
Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.