Lítill sáttahugur í þingmanninum
Páll Magnússon

Eyjafréttir sögðu fyrr í dag frá því að fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum hefði áhyggjur af komandi kosningum og veikri stöðu Páls Magnússonar oddvita þingflokksins vegna framgöngu hans í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga og á þessu kjörtímabili. Í kjölfarið á umfjöllun Eyjafrétta spurði Morgunblaðið Pál Magnússon út í stöðuna.  Í viðtalinu sagði hann: „Líklega ætti Jarl [formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum] nú að hafa þyngri áhyggjur af stöðu Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum, þar sem hann er formaður fulltrúaráðsins, en stöðu hans í Suðurkjördæmi.“

Þegar Eyjafréttir báru þessi orð undir Jarl Sigurgeirsson formann Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum sagði hann að þegar kemur að Páli Magnússyni sé dónaskapurinn og hrokinn hættur að koma á óvart.  „Það þarf sjálfsagt að leita lengi áður en finna má fordæmi fyrir því að þingmaður og hvað þá oddviti flokks stígi fram með þessum hætti.  Hafa þarf hugfast að Sjálfstæðisflokkurinn í Vestmannaeyjum fékk 45,4% atkvæða og langflest í sveitarfélaginu.  Fyrir Heimaey, flokkurinn sem Páll studdi, fékk eingöngu 34,2% og Eyjalistinn 20,3%.  Ekki vantaði nema örfá atkvæði upp á að Sjálfstæðisflokkurinn héldi velli þrátt fyrir fordæmalausa framkomu oddvitans.“    

Jarl segir að hann hafi fengið símtöl víða úr kjördæminu eftir þetta nýjasta útspil Páls.  “Eðlilega velta Sjálfstæðismenn annars staðar í kjördæminu nú vöngum yfir því hvað oddvitanum þyki um þeirra frammistöðu. Einn af kjörnum fulltrúum sem hafði samband við mig nú fyrir skömmu benti mér til dæmis á að Sjálfstæðisflokkurinn fékk 38,4% í Árborg, 22,9% í Reykjanesbæ og 29,7% á Hornafirði.  Allt talsvert minna en oddvitinn skammar sitt fólk í Eyjum fyrir að hafa fengið. Fólk sem gefur sig af lífi og sál í framboð og gerir sitt besta undrast því að sjálfur oddvitinn skuli svo gera lítið árangri flokksins í Vestmannaeyjum, einu af höfuðvíginu.“  Jarl segir engu líkara en að Páll geri sér ekki grein fyrir því að hann, sjálfur oddvitinn, hefði ekki þurft að leggja til nema 3 til 5 atkvæði til að meirihlutinn hefði haldið.   „Atkvæði hans og fjölskyldu hans hefðu dugað“.

Jarl segir að því miður sé lítill sáttahugur í oddvitanum.  „Ég hef verið virkur þátttakandi í starfi flokksins í á annan áratug.  Ég hef aldrei gegnt stöðu kjörins fulltrúa, heldur eingöngu verið i grasrótinni og hingað til liðið vel þar.  Ég veit hversu gaman þetta getur verið og hvað Sjálfstæðismenn geta verið eins og ein fjölskylda, þvert á kjördæmið, þegar leiðtoginn er sterkur.  Eftir þann fjölda símtala og skilaboða sem ég hef fengið víða úr kjördæminu í dag veit ég að fólk saknar þess að eiga oddvita sem sameinar í stað þess að sundra.  Oddvita sem þekkir kjördæmið, vinnur fyrir það og ber virðingu fyrir þeim sem að starfa í grasrótinni.  Mín von er sú að í kjölfarið á næsta prófkjöri fáum við slíkan oddvita.“

 

Nýjustu fréttir

Stefnir í spennandi prófkjör hjá Sjálfstæðismönnum
Vonir vakna hjá TV á Íslandsmóti skákfélaga
Ekkert siglt í dag
Þóra Guðný og Svenni um bygginarframkvæmdina  
Gular viðvaranir víðast hvar
Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.