Mun efla lögregluna í Vestmannaeyjum

Fréttatilkynningin:

Hinn 29. desember sl. gaf dóms- og kirkjumálaráðuneytið út reglugerð um
stjórn lögreglurannsókna, rannsóknardeildir og samvinnu lögreglustjóra við rannsókn opinberra mála. Breytingarnar eru liður í viðamiklum breytingum á skipulagi lögreglunnar. Breytingarnar eru allar hugsaðar til þess að efla lögregluna í landinu með stækkun umdæma, sem leiðir til þess að mannafli lögreglunnar nýtist betur og ótal möguleikar opnast á sérhæfingu lögreglumanna, með tilheyrandi eflingu rannsókna og löggæslu. Liður í þessum breytingum er, að framvegis munu færri og öflugri rannsóknardeildir sinna rannsókn hinna alvarlegra og flókinna afbrota eingöngu.

Við ákvarðanir vegna breytinga á lögreglulögunum og um stofnun rannsóknardeilda á sjö stöðum á landinu, var sérstaða Vestmannaeyja áréttuð og komið til móts við hana með vísan til tillögu í lokaskýrslu framkvæmdanefndar um nýskipan lögreglumála þar sem sagði:


Staða rannsóknarlögreglumanns í Vestmannaeyjum
Töluverð gagnrýni kom fram á fundi nefndarinnar á Selfossi á þá tillögu nefndarinnar að færa fjárveitingu vegna rannsóknarlögreglumanns í Vestmannaeyjum til lykilembættis á Selfossi. Að mati nefndarinnar var það nauðsynlegt til að styrkja betur uppbyggingu einnar rannsóknardeildar fyrir allt Suðurland. Með hliðsjón af þeirri skýru andstöðu sem fram kom á fundinum telur nefndin rétt að hugað verði að uppbyggingu rannsóknardeildar á Selfossi með öðrum hætti og ekki hróflað við fjárveitingu til embættisins í Vestmannaeyjum.

Í dag var sagt frá því í fréttum að bæjarráð Vestmannaeyja hefði sent frá sér ályktun vegna þessa og telji ráðið að reglugerðin skerði þjónustu lögreglunnar við Vestmannaeyinga. Bæjarstjóri Vestmannaeyja hefur svo haldið því fram opinberlega að rannsóknir opinberra mála í Eyjunum skaðist við breytingarnar, meðal annars vegna landfræðilegrar legu Eyjanna, þar sem bíða verði rannsóknarmanns ofan af fastalandinu.

�?essar áhyggjur bæjaryfirvalda í Eyjum eru með öllu ástæðulausar. Eins og legið hefur fyrir lengi, og dómsmálaráðherra tók sérstaklega fram á alþingi þegar frumvarp til lögreglulaga var lagt fram, þá verður engin breyting á stöðu rannsóknarlögreglumanns í Eyjum. �?ar er nú, rétt eins og var fyrir breytingu, staðsettur rannsóknarlögreglumaður sem getur tekið til við rannsóknir afbrota um leið og vitneskja berst um þau. Nú hefur hins vegar orðið sú breyting, að auk þeirrar þjónustu sem lögreglan í Vestmannaeyjum veitir munu íbúar Vestmannaeyja einnig njóta þess styrks sem felst í rannsóknardeild, sem er á Selfossi og sinnir rannsóknum mála sem krefjast sérhæfingar og aukinnar þekkingar.

�?ær breytingar sem urðu á skipan löggæslumála nú um áramótin, munu efla lögregluna í Vestmannaeyjum og þjónustu hennar við Eyjamenn.

Nýjustu fréttir

ÍBV með mikilvægan sigur gegn Fram
Hlynur bætti Íslandsmetið í hálfmaraþoni
Líflegt spjall á N1 við Friðarhöfn
Tjaldsvæði opnað inni í Herjólfshöll á Þjóðhátíð
Örlygur Helgi ,,fyrst og fremst heiður”
Mannabreytingar í nefndum bæjarins eftir flokkaskipti
Eyjamenn sækja Fram heim
Á rauðu ljósi í Reykjavík
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.