Svavar tekur við kvennaliði Selfoss
Svavar Vignisson nýráðinn þjálfari Selfoss og Þórir Haraldsson formaður handknattleiksdeildar. Umf. Selfoss / ÁÞG

Svavar Vignisson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna á Selfossi. Frá þessu var greint á heimasíðu félagsins í gær. Svavar, sem er 48 ára gamall, hefur bæði spilað með og þjálfað ÍBV. Hann var leikmaður liðsins frá 1990-2006 með tveggja ára viðkomu á meginlandinu, í FH. Hann þjálfaði meistaraflokk ÍBV karla frá 2008-2010 og meistaraflokk kvenna frá 2010-2015.

„Ég er mjög spenntur að taka þjálfaraskóna af hillunni og vinna með faglegu teymi á Selfossi.  Selfoss hefur sýnt að þau kunna að búa til frábært handboltafólk bæði karla- og kvennamegin og vonandi tekst okkur teyminu að byggja á því góða starfi sem verið hefur á Selfossi.“

Handknattleiksdeildin er gríðarlega ánægð með þessa ráðningu á Svavari og bindur miklar vonir við að hann verði mikilvægur hluti af áframhaldandi uppbyggingu kvennahandbolta á Selfossi. Rúnar Hjálmarsson mun halda áfram sem aðstoðarþjálfari liðsins líkt og undanfarin ár, ásamt því að vera styrktarþjálfari liðsins. Um leið þakkar handknattleiksdeildin Erni Þrastarsyni, fráfarandi þjálfara, fyrir gott starf í þeirri uppbyggingu sem staðið hefur yfir.  Örn mun snúa sér að öðrum störfum innan deildarinnar.

Nýjustu fréttir

Halla Hrund óskar eftir opnum fundi um stöðu samgangna til Vestmannaeyja
15 ára stelpa úr Eyjum misst 12 daga úr skóla
Aðstæður versnuðu í gær – gluggi í dag
Innviðaráðherra svarar bæjarráði
Spurt og svarað: Jón Þór frá Miðflokknum
Hafnað um stækkun ramps
Fyrirliði ÍBV spennt fyrir komandi tímabili í Bestu deildinni
Þungt tap ÍBV gegn KR
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.