Opnað fyrir umsóknir á tjaldlóðum

Opnað hefur verið fyrir umsónir á lóðum fyrir hvítu tjöldin á Þjóðhátíð. Sækja þarf um “lóð”  á www.dalurinn.is , skrá sig þar inn og fylla út upplýsingar sem beðið er um. Mikilvægt er að allir reitir sé fylltir út svo að umsókn sé gild. Nauðsynlegt er að vita nákvæma breidd á tjaldinu áður en umsókn er fyllt út.

Fyrir hvern lengdarmeter sem sótt er um verður tekin 10.000 króna trygging af kreditkorti sem verður færð aftur inn á kortið fyrir Þjóðhátíð.

14. júlí 2021 kl. 10:00
Opnað verður fyrir skráningu á www.dalurinn.is, það þarf að skrá sig inn í kerfið með rafrænum skilríkjum líkt og þegar miðar í Dalinn eru keyptir. Send verður staðfesting á skráningu með tölvupósti.

20. júlí 2021 kl. 10:00
Síðasti dagur skráningar á www.dalurinn.is.

21. – 23. júlí 2021
Staðfesta umsókn um lóð. Það er gríðarlega mikilvægt að staðfesta umsóknir á www.dalurinn.is undir mínar pantanir.

26. júlí 2021
Mánudaginn 26. júlí 2021 verða birtar nákvæmar staðsetningar á lóðum til allra þeirra sem sóttu um á réttan hátt í gegnum dalurinn.is og staðfestu. Þessar upplýsingar munu vera aðgengilegar undir mínar síður á www.dalurinn.is.

Frekari upplýsingar

Nýjustu fréttir

„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.