Segja hafnarstjórn haldið utan við ráðningarferið

Fulltrúi D-lista óskaði eftir umræðum um verkferla við ráðningu hafnarstjóra í framhaldi af fundi framkvæmda- og hafnarráðs frá 16.mars sl. Sú umræða fór fram á fundi á föstudag.

Vinnugögnum haldið utan við hafnarstjórn
Fram kemur í bókun að fulltrúar D lista gera alvarlegar athugasemdir við allan framgang vegna ráðningar hafnarstjóra. Ferill málsins samrýmist ekki eðlilegum stjórnsýsluháttum og gengur á svig við lög um ráðningu hafnarstjóra.
Hafnarstjórn hefur markvisst verið haldið utan við ráðningarferið allt frá því ákveðið var án aðkomu og umboðs hafnarstjórnar að auglýsa eftir hafnarstjóra, setja upp kröfur, starfslýsingu og matskvarða, og að lokum meta einn umsækjanda hæfastan. Þá hefur vinnugögnum sem varða málið í framhaldi af ráðningunni verið haldið utan við Hafnarstjórn.
Fulltrúar D lista mótmæla opinberum fullyrðingum bæjarstjóra um að Hafnarstjórn hafi metið umsækjendur. Slíkt var aldrei á hendi Hafnarstjórnar, þó svo að lög kveði á um það.

Engin gagnrýni í ferlinu
Fulltrúar E- og H-lista bóka svöruðu með bókun. “Fulltrúar E- og H-lista líta svo á að þar sem enginn gagnrýni kom fram frá fulltrúum D-lista á ráðningarferlið né í aðdraganda þess, að okkur hafi tekist vel til, og því skýtur því skökku við að nú tæpum 6 mánuðum síðar komi fram gagnrýni. Sér í lagi þar sem engar athugasemdir voru gerðar á ferlið fyrr en eftir að ráðningaferli var lokið. Allir fulltrúar í ráðinu voru upplýstir um það ferli sem var í gangi og var fundi í ráðinu m.a. frestað vegna þessarar vinnu. Við ráðningu í starf hafnarstjóra Vestmannaeyjahafnar hafa fulltrúar E- og H-lista gætt þess vel að viðhalda faglegu ráðningaferli og var hluti af því að fela starfsmannasviði Vestmannaeyjabæjar að leiða þá vinnu, ásamt því naut starfsmannasviðið aðstoðar Geirlaugar Jóhannsdóttur sérfræðings í mannauðsmálum frá Hagvangi og Ólafs Þórs Snorrasonar hafnarstjóra og framkvæmdastjóra framkvæmda- og umhverfissviðs. Eftir yfirferð Geirlaugar á fundi nr.260 mátum við þá umsækjendur sem skoruðu hæst í ráðningarferlinu.
Það var sameiginlegur skilningur okkar að eðlilegast væri að ráðning hafnarstjóra færi í gegnum stjórnsýslu Vestmannaeyjabæjar, sérstaklega þar sem við hafnarsvið er ekki starfandi mannauðs- eða starfsmannastjóri.
Þessar ásakanir koma mjög á óvart sérstaklega þar sem ekki hefur borið skugga á samstarf allra fulltrúa í ráðinu, framkvæmda- og hafnarráð hefur alltaf unnið í sátt og samlyndi.”

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.