Innileg fjöldagleði á árshátíð VSV
26. október, 2021

Það var kominn tími á að gera sér dagamun og menn gerðu það sannarlega á glæsilegri árshátíð Vinnslustöðvarinnar um helgina. Veirufaraldurinn svipti okkur þessum árlega gleðskap í fyrra en nú small allt. Samkoman tókst líka svona ljómandi vel. Gestir og starfsmenn í Höllinni brostu hringinn, skemmtikraftar fóru á kostum og hljómsveitin Made-in sveitin lék við hvurn sinn fingur.

Um 250 manns sóttu árshátíðina, allt skipulag var með miklum ágætum og framkvæmdin eftir því. Nýir rekstraraðilar Hallarinnar eiga lof skilið fyrir liðlegheit, dugnað og útsjónarsemi til að gera hátíðina sem glæsilegasta.

Einsi kaldi & Co sáu um matinn sem á borð var borinn og þarf ekki að fjölyrða um þann þátt málsins frekar en fyrri daginn. Það er ekkert eðlilegt að þessu fólki takist stöðugt að toppa sjálft sig frá ári til árs í eldhúsinu og við að þjóna til borðs.

Veislustjórarnir settu heldur betur mark sitt á samkomuna og kættu mannskapinn aftur og aftur svo hláturrokur bergmáluðu um salinn. Til stóð að Eva Ruza og Hjálmar Örn gegndu þessum lykilhlutverkum en hún lenti í sóttkví og Helgi Jean hljóp í skarðið á síðustu stundu. Eva hélt samt í spotta og fjarstýrði veislustjórninni þannig að þegar upp var staðið komu öll þrjú að málinu þótt aðeins tveir væru sýnilegir á sviðinu.

Aðgöngumiðar voru númeraðir og voru jafnframt happdrættisvinningar. Þeir hinir heppnu fögnuðu mjög að vonum en einn samt meira en aðrir því sá reif sig úr að ofan og tók við vinningnum nakinn til beltis. Hann hefði fengið gult spjald fyrir tiltækið eftir markaskorun á knattspyrnuvelli en uppskar hins vegar lófatak og húrrahróp á árshátíðarvelli VSV. Þegar upp var staðið reyndist sá sigurreifi alls ekki eiga vinningsmiðann og hinn rétti miðaeigandi hrifsaði vinninginn úr höndunum úr höndum hans þegar hann fór af sviðinu!

Glódís Dúna Óðinsdóttir, 11 ára, kom fram í fyrsta skipti sem söngkona á sviði og heillaði áheyrendur upp úr skónum. Ný söngstjarna sem hreinlega lýsti upp salinn.

Hápunktinum náði árshátíðin þegar sýnd var stuttmynd Hafliða Sigurðarsonar og Elmars Hrafns Óskarssonar um lífið í Vinnslustöðinni. Frábært handrit, framúrskarandi leikur þeirra félaga og aukaleikara. Mynd sem var í alla staði stórskemmtileg og vel gerð.

Síðast en ekki síst skal borið verðskuldað lof á Made-in sveitina, rokkarana sem héldu uppi linnulausi dansfjöri í tvo og hálfan tíma án þess nokkru sinni að taka pásu! Einvalalið tónlistarmanna með Hrein Örn Heimisson í broddi fylkingar. Það átti greinilega ekkert síður við hljómsveitina en alla aðra á vettvangi: Tími var kominn til að sletta úr klaufum.

Árshátíðin 2021 fór að öllu leyti sérlega vel fram og fólk skemmti sér hið besta líkt og til var stofnað. Fólk mætti brosandi, fór brosandi út í nóttina að veisluhöldum loknum og brosti óslitið allt þar á milli.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst