GRV fékk gagnvirkan skjá að gjöf
Hér má sjá tvo drengi, Tjörva og Ingimar sem eru hæstánægðir með nýja skjáinn. Mynd: GRV

Í haust fékk Grunnskólinn í Vestmannaeyjum góða gjöf frá Kvenfélaginu Heimaey. Gjöfin var peningur sem ætlaður var til kaupa á tæki sem gæti nýst vel í sérkennslu.

Í gær kom tækið loksins í hús, þetta er gagnvirkur skjár á hjólum, skjánum er hægt að halla á ýmsa vegu, hækka og lækka og færa auðveldlega til og frá, þetta er tæki sem mun nýtast sérlega vel.

Gunnhildur Hrólfsdóttir, Ingibjörg Sverrisdóttir og Katrín Gunnarsdóttir gerðu sér ferð til Eyja í haust til að afhenda skólanum gjafabréfið. Hér eru þær ásamt Önnu Rós skólastjóra. Mynd: GRV

 

Nýjustu fréttir

TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar
Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.