Íslenski makrílflotinn er að veiðum í Smugunni, mjög djúpt undan Austurlandi. Nú eru fimm Eyjakip á miðunum, Heimaey VE, Sigurður VE og Álsey VE sem eru í eigu Ísfélagsins. Skip Vinnslustöðvarinnar, Gullberg VE og Kap VE eru á miðunum en Huginn VE er á landleið með 1000 tonn og Ísleifur VE er á leið á miðin eftir að hafa landað 700 tonn.
Sigling fram og til baka er mjög löng og því sameinast skip hverrar útgerðar að fylla eitt skip og svo koll af kolli.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.