Stelpurnar okkar eiga leik á EM í dag kl. 16:00, leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á RÚV og fyrir leik hefst útsending frá EM stofunni kl. 15:15.
Berglind Björg átti stórleik í fyrsta leik liðsins gegn Belgum á sunnudag, en sá leikur endaði með jafntefli 1-1. En til að eiga möguleika á að komast upp úr riðlinum þurfa þær að vinna leikinn í dag gegn Ítalíu.
Við fengum þau til að spá fyrir um leikinn gegn Ítalíu í dag
Guðmunda og Viðar, foreldrar Elísu: 1-1 jafntefli
Sólveig og Þorvaldur, foreldrar Berglindar: 1-1 jafntefli
Hafliði Breiðfjörð eigandi Fótbolti.net: 2-1 fyrir ísland
Nú er orðið ljóst að þetta verður stór leikur fyrir bæði lið þar sem Ísland er með eitt stig og Ítalía ekkert, eftir tap gegn Frökkum.
Mest spennandi leikurinn
Margrét Lára hafði þetta að segja um leikinn í dag. „Fyrir mitt leyti, ef við tölum um leikina í riðlinum, þá verður Ítalíuleikurinn mest spennandi. Úrslit í þeim leik munu skipta sköpum fyrir framhald Íslands á mótinu, held ég. Ítalía er knattspyrnuþjóð og kvennaboltinn þar í landi á mikilli siglingu. Verður krefjandi en gaman að mæta þeim.“
Myndir eru frá Hafliða Breiðfjörð hjá Fotbolti.net






















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.