Mótmælir að óþekktir aðilar innan flokksins hagræði úrslitum prófkjörs

Í kjölfar þeirrar umræðu sem orðið hefur í þessari viku um að einhverjir óþekktir aðilar innan Framsóknarflokksins hyggist hagræða úrslitum prófkjörs Framsóknarmanna í Suðurkjördæmi, samþykkti stjórn Framsóknarfélags Vestmannaeyja eftirfarandi ályktun á fundi í gær:


Framsóknarfélag Vestmannaeyja lýsir ánægju með góða þátttöku í prófkjöri Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi um nýliðna helgi. Jafnframt leggur félagið ríka áherslu á að framboðslisti flokksins fyrir Alþingiskosningarnar í vor verði skipaður því góða fólki sem lagði á sig mikla vinnu og mikinn kostnað við þátttöku í prófkjörinu.
Framsóknarfélag Vestmannaeyja leggur ríka áherslu á að lýðræðisleg kosning verði látin ráða og ákveði frambjóðendur að taka ekki þau sæti sem þeim ber á listanum skuli þeir frambjóðendur sem á eftir koma
færast upp listann. �?að er mikilvægt að almennar leikreglur séu virtar svo flokkurinn þurfi ekki enn á ný að þola umræðu um spillingu,
klíkuskap og reykfyllt bakherbergi.


Stjórn Framsóknarfélags Vestmannaeyja

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.