Laufey á Bakka  – Framkvæmdir hafnar

Þau mikilvægu og gleðilegu tímamót urðu ( í dag ) mánudaginn 22.ágúst að framkvæmdir eru hafnar á Laufey Welcome Center á Bakka. Í ársbyrjun 2022 var fjármögnun á þjónustumiðstöðinni Laufey tryggð með aðkomu langtímafjárfesta sem hafa mikla trú á verkefninu. Fyrsta stöðin, og sú mikilvægasta fyrir Vestmannaeyjar, mun rísa á Bakka.

Þessi ferill hefur verið langur og strangur, sér í lagi þar sem fjármögnunarferlið keyrði í fangið á Covid og allt viðskiptaumhverfi breyttist á svipstundu. Við fundum þó alltaf mikinn áhuga og velvilja í Vestmannaeyjum, hjá almenningi, bæjarstjórn, stjórn Herjólfs, ferðamálasamtökunum og ber einnig að nefna Lífeyrissjóðs VE sem hvatti okkur áfram vitandi mætavel hvaða þýðingu svona segull og veiðikofi myndi gera fyrir bæjarfélagið og þar með þeirra sjóðsfélaga. Einlægur og auðsýndur áhugi fjölmiðla í Vestmannaeyjum á verkefninu hvatti okkur líka til dáða. Við þökkum öllum þessum aðilum kærlega fyrir stuðninginn.

Jarðframkvæmdir og Landflutningar verða umtalsverðir í undirbúningi fyrir stórt bílaplan, öflugar hraðhleðslustöðvar og myndarlega byggingu, sem hefur tekið breytingum með betri þjónustu fyrir jafnt ferðamenn á Suðurlandi og Eyjamenn á öllu landinu, í huga. Vonir standa til að Laufey verði risin og starfandi, með fána Vestmannaeyja blaktandi við hún, á 50 afmæli eldgossins 1973 á Heimaey.

Teiknistofa TPZ  í Vestmannaeyjum hefur tekið að sér gæðaeftirlit með jarðframkvæmdum næstu vikur og mánuði á Bakka og hefur þegar hafið störf.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Laufeyju.

Vonir standa til að Laufey verði risin og starfandi, með fána Vestmannaeyja blaktandi við hún, á 50 afmæli eldgossins 1973 á Heimaey.
Vinnsla hófst í dag, mánudaginn 22. ágúst. Á myndinni eru f.v. Björgvin Björgvinsson frá teiknistofu TPZ, Ólafur Einarsson eigandi Þjótanda, Sveinn Waage og Davíð Halldórsson stjórnendur Laufeyjar.

Nýjustu fréttir

ÍBV stelpunum spáð sigri í Olís deildinni – Strákunum spáð sjöunda sæti
Spyr Morgunblaðið spurninga sem RÚV lætur eiga sig?
Myndband: Ný íbúðablokk tekur á sig mynd við Áshamar
Sjö sóttu um – sex umsóknir standa eftir
Evrópa er meira en Evrópusambandið
Suðurlandi allt
Tvö afmælismót Taflfélagsins um helgina
Kostnaður við NSL-4 stefnir í 3,1 milljarð – umfang tjónsins enn óljóst
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.