Herjólfur ohf. & KFS framlengja samstarfi

Herjólfur verður einn aðalstyrktaraðili KFS, sem kemur sér afar vel í baráttunni í 3. deild. Með KFS spila ungir og efnilegir knattspyrnumenn með reyndari leikmönnum í meistaraflokki. Í liði ÍBV í dag sem og undanfarin ár spila fjölmargir leikmenn sem hófu meistaraflokksferil sinn með KFS.

KFS er 25 ára í dag og er því vel við hæfi að félagið semji áfram við sína helstu bakhjarla. Á myndinni má sjá Hjalta Kristjánsson framkvæmdastjóra KFS ásamt Herði Orra framkvæmdastjóra Herjólfs ohf..

,,Samstarfið hefur reynst félaginu afskaplega vel undanfarin ár og er virkilega ánægjulegt að Herjólfur sé tilbúinn að standa svona vel við bakið á okkur, svona samningur hjálpar starfinu mikið sem er svo mikilvægt fyrir þessa ungu stráka“ segir Hjalti Kristjánsson framkvæmdastjóri KFS.

,,Það er ángæjulegt að sjá alla þessa ungu stráka blómstra svona vel í KFS þar sem strákunum gefst flott tækifæri í íþróttinni, ég hef sjálfur fylgst vel með og það er gaman að fylgjast með þessu mikilvæga starfi fyrir samfélagið okkar“ segir Hörður Orri framkvæmdastjóri Herjólfs ohf.

Á myndinni eru Hjalti Kristjánsson, framkvæmdastjóri KFS og Hörður Orri Grettisson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf. að handsala nýtt samkomulag.

Nýjustu fréttir

Jafnt hjá ÍBV og Fram í Lengjubikar kvenna
Tómas Bent og félagar í Hearts aftur á sigurbraut
ÍBV vann Suðurlandsslaginn
Öflug barátta og samstaða skipar öndvegi í framtíð Eyjanna
Engin börn í vistun utan Vestmannaeyja
Grípa þarf til aukasundkennslu eftir langvarandi lokun
Suðurlandsslagur í Eyjum
Herjólfur til Landeyjahafnar seinni partinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.