Á heimaslóð

Næstkomandi föstudag, hinn 21. okt. eru liðin 110 ár frá fæðingu Alfreðs. Af því tilefni efnir Sögusetrið 1627 til samkomu í Sanaðarheimili Landakirkju kl. 17 þar sem Alfreðs verður minnst og kynnt verður útgáfa 14 laga hans við ljóð ýmissa vina hans og samtímamanna. Ýmsir listamenn flytja sýnishorn af lögum Alfreðs, fjallað verður um tónskáldið og þá verður boðið upp á léttar veitingar.
Alfreð var mikill tónlistarmaður í eðli sínu og samdi mörg falleg og grípandi lög. Mörg þeirra urðu vinsæl en önnur hafa smám saman gleymst, sum án þess að vera skrifuð með nótum og eru því einungis til í minni þeirra sem nú eru komnir vel yfir miðjan aldur.
Alfreð sýndi ungur góða tónlistarhæfileika. Hann lærði á „orgelharmoníum“ hjá Ragnari Benediktssyni hér í Eyjum, hjá Páli Ísólfssyni tónskáldi og organista lærði hann á píanó og fór til frekara náms til Kaupmannahafnar.

Eftir að Alfreð kom aftur heim til Eyja var hann mjög áberandi í skemmtana- og tónlistarlífinu í bænum. Píanóið var hans aðal hljóðfæri en harmoníkuleikur hans heillaði einnig marga. Hér lék hann á kaffihúsum, á skemmtunum og dansleikjum ýmist einn á nikkuna og píanóið eða með öðrum í hinum ýmsu hljómsveitum. Fjölmargir samtímamenn Alfreðs léku með honum í hljómsveitum, ortu ljóð við lögin hans og tengdust honum á ýmsan annan hátt. Meðal þeirra má nefna Ástgeir Ólafsson ( Ása í Bæ), Árna Guðmundsson ( Árna úr Eyjum), Loft Guðmundsson, Oddgeir Kristjánsson, Sigurð Guðmundsson ( Sigga á Háeyri), Hafstein Stefánsson og Karl Björnsson (Kalla bakara).
Vestmannaeyingar og gestir eru hvattir til að mæta í Safnaðarheimilið kl. 17:00

Sögusetrið 1627

Nýjustu fréttir

Fækkun sjúkrafluga milli lands og Eyja
Tökum þátt í að gera bæinn okkar enn betri!
Hvert siglir Herjólfur í dag
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.