Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu báðir í Eyjum í gær. Bæði skip voru með fullfermi en þau hafa að undanförnu landað á tveggja til þriggja daga fresti.
Rætt er við Birgi Þór Sverrisson skipstjóra á Vestmannaey á vef Síldarvinnslunnar. Þar er hann spurður fyrst um aflann og hvar hefði verið veitt.
„Aflinn er ýsa, þorskur og koli. Við byrjuðum á Ingólfshöfða og vorum þar í ýsu og kola en síðan var þorskurinn tekinn á Broadway vestan við Eyjar. Það var ágætis veður í túrnum og reyndar hefur ekki verið hægt að kvarta mikið undan veðri að undanförnu. Hann hefur legið í norðanáttum og veðrið hefur ekki haft mikil áhrif á veiðarnar. Það er búin að vera fínasta vertíð til þessa og menn sáttir við árangurinn.
Vertíðin hefur hins vegar verið svolítið óvenjuleg eða skrítin. Fiskurinn hefur verið seint á ferðinni og hann hefur hagað sér öðruvísi en yfirleitt áður. Hann hefur haldið sig grunnt og ekki gengið út á hinar hefðbundnu hrygningarslóðir. Veiðin hefur gjarnan komið í gusum, það fiskast vel en síðan verður allt steindautt og þá þarf að færa sig. Við höfum séð töluvert af loðnu og henni fylgir hvalur. Loðnan kom seint og við urðum fyrst varir við hana á Vík og Pétursey um 10. mars. Nú höfum við líka séð loðnu fyrir vestan Eyjar. Auðvitað gerum við okkur ekki grein fyrir því hve loðnan gengur í miklu magni en hún sýnir sig hér. Við munum halda til veiða á ný aðfaranótt laugardags og gert er ráð fyrir að landað verði á annan í páskum. Það verður að tryggja vinnslunum hráefni eftir hátíðina,” segir Birgir Þór.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.