Áætluð framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga árið 2022
29. september, 2021

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt eftirfarandi tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaðar úthlutanir framlaga á árinu 2022.

Framlög til sveitarfélaga til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts árið 2022

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða heildarúthlutun framlaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti á árinu 2022, sbr. reglugerð, nr. 80/2001 með síðari breytingum. Á grundvelli áætlunar um tekjur sjóðsins á árinu 2022 nemur áætlað ráðstöfunarfjármagn sjóðsins til greiðslu framlaganna 4.858,8 m.kr. Jöfnunarsjóður greiðir sveitarfélögum framlög fyrirfram sem nema 60% af áætluðum framlögum ársins eða um 2.915,3 m.kr. Greiðslan er innt af hendi með fimm jöfnum greiðslum mánuðina febrúar til júní.

Uppgjör framlaganna á árinu 2022 fer fram mánuðina, júlí, ágúst og september á grundvelli upplýsinga frá Þjóðskrá Íslands um álagningarstofna fasteignaskatts frá 31. desember 2021, upplýsinga um álagningarhlutföll fasteignaskatts á árinu 2022 og upplýsinga um veitta afslætti sveitarfélaga af fasteignaskatti á árinu 2022.

Áætluð framlög til útgjaldajöfnunar fyrir árið 2022

Áætluð útgjaldajöfnunarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga munu nema alls 11.200 m.kr. árið 2022. Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar þess efnis, sbr. b. liðar 12. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, að fjárhæð 11.200 m.kr.

Til úthlutunar nú koma 10.400 m.kr. samkvæmt A-hluta framlaganna og 575 m.kr. samkvæmt B-hluta framlaganna vegna skólaaksturs úr dreifbýli eða samtals 10.975 m.kr. Í desember koma til úthlutunar 175 m.kr. til viðbótar vegna skólaaksturs úr dreifbýli á grundvelli umsókna sveitarfélaga vegna íþyngjandi kostnaðar við aksturinn á árinu. Jafnframt er áætlað að 50 m.kr. verði úthlutað á árinu 2022 vegna akstursþjónustu fyrir fatlað fólk úr dreifbýli.

Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í apríl 2022 á grundvelli íbúafjölda 1. janúar 2022. Framlögin verða greidd til sveitarfélaga mánaðarlega en 10 prósentum er þó haldið eftir af áætluðum framlögum til að mæta því ef ráðstöfunarfjármagn sjóðsins verður minna eða útgjöld meiri en áætlað var. Uppgjör framlaganna fer fram í desember 2022.

Um er að ræða 1.200 m.kr. hækkun frá áætlun framlaganna á árinu 2021.

Almenn jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða heildarúthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla á árinu 2022, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 351/2002, að fjárhæð samtals 10.825 m.kr. Þar af eru 60 m.kr. vegna áætlaðs uppgjörs framlaga ársins 2020.

Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í febrúar 2022 á grundvelli íbúafjölda 1. janúar 2022, endanlegs álagningarstofns útsvars vegna ársins 2020 og  endurskoðunar á áætluðum útsvarstekjum sveitarfélaga á árinu 2021.

Framlögin koma til greiðslu mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 0,77% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar.

Athygli er vakin á því að erfitt er að spá fyrir um skatttekjur ríkissjóðs og áætla hverjar útsvarstekjur sveitarfélaga verða á næsta ári. Því kunna þær heildarfjárhæðir sem varið er til þessara framlaga að breytast.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst