Ægisgata 2 sett aftur á sölu
Ægisgata 2. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur ákveðið að setja aðra og þriðju hæð Ægisgötu 2 aftur á sölu. Ástæðan er sú að tilboðsgjafar náðu ekki að ljúka fjármögnun kaupanna innan þeirra fresta sem þeim höfðu verið veittir.

Bæjarráð samþykkti í apríl 480 milljóna króna tilboð í eignina og var sú ákvörðun síðar staðfest af bæjarstjórn.

Tilboðsgjöfum var í lok júní veittur tveggja vikna frestur til að ganga frá kaupsamningi svo þeir gætu lokið fjármögnun. Fresturinn var síðar framlengdur til 17. ágúst og að honum loknum óskuðu tilboðsgjafar eftir enn frekari fresti.

Bæjarráð varð ekki við þeirri beiðni og fól stjórnsýslu Vestmannaeyjabæjar að setja eignina aftur á sölu.

Nýjustu fréttir

Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.