Afhending menntaverðlauna í kvöld
Verðlaunað verður fyrir framúrskarandi skólastarf, verkefni og kennslu á RÚV kl. 20.15
Iðnnám er í stórsókn í Framhaldsskólanum.

Í kvöld fer fram afhending Íslensku menntaverðlaunanna 2025 á Bessastöðum. Verðlaunin verða veitt fyrir framúrskarandi skólastarf, verkefni og kennslu og verða afhent í sérstökum þætti á RÚV kl. 20.15.

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum (FÍV) er meðal tilnefndra í ár, fyrir framúrskarandi starf í kennslu málm- og vélstjórnargreina. Tilnefningin er í flokknum Iðn- eða verkmenntun, þar sem einnig eru tilnefnd Fataiðndeild Tækniskólans og Unnar Þorsteinn Bjartmarsson, grunn- og framhaldsskólakennari við Grunnskóla Borgarfjarðar og Fjölbrautaskóla Vesturlands.

Hefðbundnu námi hefur verið umbreytt í verkefna- og atvinnutengt nám

FÍV hefur á undanförnum árum byggt upp öflugt og nútímalegt nám í málm- og vélstjórnargreinum. Í samfélagi þar sem sjávarútvegur og iðnaður eru hornsteinar atvinnulífsins hefur skólinn þróað kennslu sem stenst ströngustu gæðakröfur og er í fremstu röð á landsvísu.

Í umsögninni um tilnefningu Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum segir:  Fyrir nýstárlega nálgun í málm- og vélstjórnargreinum þar sem hefðbundið nám hefur verið umbreytt í verkefna- og atvinnutengt nám.

Íslensku menntaverðlaunin eru samstarfsverkefni fjórtán aðila undir forystu forseta Íslands, og endurspegla sameiginlega sýn menntasamfélagsins á mikilvægi faglegs metnaðar og umbóta í skólastarfi. Þau verða eins og áður segir afhent í kvöld klukkan 20.15.

Þessu tengt: Sterk staða verkmenntunar í Eyjum

Nýjustu fréttir

Dreymir um að verða fótboltamaður
Björt hlakkar til að læra að lesa
COWI annast umhverfismat vegna stórskipakants
Tvöföld ÍBV-veisla í dag
Ólöf María snýr aftur í ÍBV og gerir tveggja ára samning
Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.