Afhentu mynd í minningu fótboltasumarsins 1973
Óli Thord afhendir Hermanni Kr. Jónssyni, stjórnarmanni ÍBV árið 1973, myndina á Hásteinsvelli. Ljósmynd: Njarðvík, knattspyrnudeild á Facebook.

Fyrir Þjóðhátíðarleik ÍBV og Njarðvíkur þann 3. ágúst síðastliðinn afhenti Ólafur Thordersen, fyrir hönd UMFN, forsvarsmönnum ÍBV mynd sem minntist tímans sem Eyjamenn höfðu Njarðvíkurvöll fyrir heimavöll árið 1973, í kjölfar eldgossins í Heimaey. Tekið var vel í þetta skemmtilega framtak.

Töpuðu aðeins einum leik

Er fram kemur í færslu á Facebook-síðu Knattspyrnudeildar Njarðvíkur þá var Njarðvíkurvöllur hálfgerð „mekka“ fyrir Eyjafólk þetta sumarið þar sem það fjölmennti á leiki ÍBV og voru margir sem komu langar vegalengdir.

Liðið varð einskonar sameiningartákn Eyjamanna sem töpuðu aðeins einum leik á vellinum en það var gegn nágrönnunum í Keflavík.

Nýjustu fréttir

Látinna minnst í Landakirkju
Við höfum þurft að ryðja brautina
Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.