Aglow samveran fellur niður - uppfært
landakirkja_safnadarh.jpg
Aglowfundur verður í safnaðarheimili Landakirkju. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Aglow samvera verður í kvöld 5. febrúar kl. 19.30 í Safnaðarheimili Landakirkju. Við munum eiga gott samfélag saman. Byrjum með hressingu,  syngum saman  og  heyrum uppörvandi boðskap. Lilja Óskarsdóttir mun tala til okkar  og verður áhugavert að heyra í henni. Lilja er kennari og hjúkrunarfræðinur og hefur starfað víða m.a. verið kristniboði í Afríku.  Lilja ætlar að tala um opinn himinn.

Jane Hansen Hoyt hefur verið formaður Aglow International í rúmlega fjóra áratugi og nú er hún að stíga til hliðar vegna aldurs. Nancy McDaniel tekur við sem leiðtogi Aglow á heimsvísu. Nancy talaði á ráðstefnu á Íslandi s.l. haust og höfum við nokkrar hitt hana. Nánari upplýsingar eru  á netsíðu AGLOW; aglow.org

Fyrir því læt ég ekki hugfallast. Jafnvel þótt minn ytri maður hrörni þá endurnýjast dag frá degi minn innri maður 2. Korintubréf 4.16

Allar konur velkomnar í kvöld og vonadi hindrar veðrið ekki.

Næstu Aglow fundir;  5. mars, 2. apríl og 7. maí 2025, segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.

Uppfært kl. 14.40.

Vegna veðurs fellur Aglow samveran niður í kvöld. 

Nýjustu fréttir

Dýpkun tefst í Landeyjahöfn
Framlag í Ferðasjóð íþróttafélaga tvöfaldast
Fullorðinsfimleikar hjá Rán
Tómas Bent með sigurmark Hearts
Tilboð langt undir áætlun í dýpkun Landeyjahafnar
Loðnan berst til Eyja
Nær sjötíu manns á þorrablóti Vinnslustöðvarinnar
Þegar jörðin talar – Og við þurfum að hlusta
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.