Áhyggjur af efnistöku við Landeyjahöfn
Á síðasta bæjarstjórnarfundi fór Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri yfir umræðu bæjarráðs um fyrirhugaða efnistöku úr sjó við Landeyjahöfn. Málið er í umsagnarferli og hefur Vestmannaeyjabær skilað umsögn við matsáætlun til Skipulagsstofnunar. Skipulagsstofnun hefur sent Vestmannaeyjabæ umsagnarbeiðni er varðar umhverfismatsskýrslu sem COWI vann fyrir hönd HPM. Skilafrestur á umsögn er til 16. maí nk. Í niðurstöðu bæjarráðsfundar um málið óskar Vestmannaeyjabær eftir fundi með Skipulagsstofnun til að fylgja umsögninni eftir. Búið er að senda ósk um fund til forstjóra Skipulagsstofnunar.

„Bæjarstjórn tekur undir áhyggjur og fyrirvara bæjarráðs og sendi frá sér sameiginlega ályktun:

,,Bæjarráð ítrekar áhyggjur sínar af þessu verkefni sérstaklega þar sem um er að ræða mikilvægt svæði fyrir sveitarfélagið er lýtur að siglingum um höfnina, hrygningarsvæði fiska og innviðum á hafsbotni. Reynslan af Landeyjahöfn og sandmokstri þar hefur sýnt að þrátt fyrir bestu áætlanir er ekki hægt að sjá fyrir hvernig til muni takast við efnistöku svo tryggt verði að hún hafi ekki áhrif til hins verra á Landeyjahöfn og ekki verði tjón á mikilvægum innviðum Eyjamanna.
Vestmannaeyjabær mun senda umsögn um málið í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar. Jafnframt mun Vestmannaeyjabær óska eftir því að fylgja umsögninni eftir með fundi,” segir í bókuninni sem allir níu bæjarfulltrúar skrifuðu undir.

Kortið sýnir að Landeyahöfn gæti verið í hættu.

 

 

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.