Hermann Hreiðarsson er ánægður með þróun mála hjá Portsmouth sem hefur unnið tvo leiki í röð í ensku 1. deildinni eftir erfiðar vikur að undanförnu. Portsmouth lagði Barnsley, 1:0, á laugardaginn en það var fyrsti heimasigur liðsins síðan í lok október. Á vef stuðningsmanna liðsins, Blue Army, segir að uppgangur liðsins nú sé í takt við endurkomu Hermanns Hreiðarssonar í byrjunarliðið. Hann stjórni nú vörninni og sé að ná fyrri styrk eftir langvarandi meiðsli.