Ánægjulegt að áhuginn í iðnnám sé að aukast
Skl Opf DSC 1375
Starfsfólk Skipalyftunnar á verkstæðinu. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Skipalyftan hefur þjónustað sjávarútveginn síðan árið 1981. Nú starfa tæplega fjörtíu manns hjá fyrirtækinu. Þar af eru sex nemar í vélvirkjun.  

Að sögn Stefáns Jónssonar, framkvæmdastjóra hefur verkefnastaðan verið ágæt að undanförnu. Auk þjónustu við sjávarútveginn rekur fyrirtækið verslun á Eiðinu. Þar má fá allskyns verkfæri, varahluti, reiðhjól málningu, svo fátt eitt sé nefnt.  

Er talið berst að nemunum sem sagt var frá fyrr í þessari umfjöllun, segir Stefán að það sé mjög ánægjulegt að iðnnám sé að taka við sér aftur. Hann segir að það sé mjög mikilvægt að fá fólk til þess að fara í iðnnám. Nú sé loks að aukast áhuginn og verkefnin sé yfirleitt næg hjá öllum iðnaðarmönnum. 

Skipalyftan er plötusmiðja, véla- og renniverkstæði auk þess að þjónusta þau skip sem eru í upptökumannvirkjum Vestmannaeyjahafnar. Þá heldur fyrirtækið úti lager og verslun með mikið úrval af vörum tengdum málmiðnaði, sjósókn og veiðum. 

Verslunin í Skipalyftunni þjónar iðnaðarmönnum, sjávarútveginum og fólki í framkvæmdum. „Við bjóðum upp á breitt vöruval og þekkt vörumerki en þar má nefna DeWalt, Milwaukee, TopTul, Flügger og KochChemie sem er bílahreinsiefni sem uppfyllir ströngustu kröfur sérfræðinga sem og bílaáhugamanna.” segir Stefán og bætir við að Skipalyftan sé einnig öflug er kemur að háþrýsti-búnaði, bæði í slöngum og fittings. Verslun Skipalyftunar er opin 08.00 -18.00 alla virka daga og frá 10.00 – 14.00 um helgar. 

Nýjustu fréttir

Fækkun sjúkrafluga milli lands og Eyja
Tökum þátt í að gera bæinn okkar enn betri!
Hvert siglir Herjólfur í dag
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.