Árið 1984 voru a.m.k. 54 fiskiskip í Vestmannaeyjum og flest þeirra í rekstri fjölskyldufyrirtækja. Núna eru 6 slík eftir
Elliði Vignisson bæjarstjóri skrifar á heimasíðu sinni í dag:
Við tiltekt á skrifstofu minni rakst ég á skjal þar sem listuð voru upp skip með skráningarnúmerið VE árið 1984. Eftirtalin skip voru á þessum lista:
Gandí, Katrín, Glófaxi, Valdimar Sveinsson, �?órir, Baldur, Björg, Erlingur, Draupnir, �?órdís Guðmundsdóttir, Gullborg, Hafliði, Emma, Jökull, �?feigur III, Sjöfn, Sjöstjarnan, Nanna, Haförn, Andvari, Sæfaxi, Bergur, Gígja, Heimaey, Gjafar, Sighvatur Bjarnason, Kapp II, Skúli fógeti, Kristín, �?órunn Sveinsdóttir, Danski Pétur, �?feigur, Frár, Stefnir, Suðurey, Guðmundur, Vestmannaey, Álsey, Bjarnarey, Dala Rafn, Gullberg, Huginn, Sindri, Bylgja, Breki, Klakkur, Bergey, Helga Jóh, Ísleifur, Smáey, Sigurbára, Gideon, Halkion, Sigurfari. Alls 54 skip.
Dreifð eignaraðild
Sammerkt með útgerðum flestra þessara skipa er að þau voru í fjölskyldueigu. �?að er að segja, á bak við hvert skip var fjölskylda sem lifði og hrærðist í útgerðinni. Gjarnan tók útgerðin síðan virkan þátt í samfélaginu með beinum stuðningi, ráðum og dáðum.
Horfið atvinnumunstur
Aukin hagræðingarkrafa til að mynda vegna hærri skatta og aukinna fjárfestinga hefur gert út af við flestar fjölskylduútgerðir. Í dag eru sennilega ekki nema 6 slíkar hefðbundnar fjölskylduútgerðir í Vestmannaeyjum (meðvitað lít ég framhjá smábátum og trillum en með því er ekki gert lítið úr þeirri grein). �?að er að segja: Glófaxi, Bergur, �?órunn, Maggý, Frár og Bylgja. Hér til viðbótar vil ég einnig nefna úgerð Hugins sem einnig er að stóru leyti í eigu einnar og sömu fjölskyldunnar og ber flest einkenni fjölskylduútgerðar. Turnnarnir tveir, Ísfélag og Vinnslustöð standa fyrir megninu af öðrum veiðum.
Aukinn arður fyrir þjóðina
Breyting á fiskveiðistjórnunarkerfinu var líkast til nauðsynleg. Í dag hefur eigandi auðlindarinnar, hin íslenska þjóð, miklar tekjur af grein sem áður var óhagkvæm og barðist sem slík í bökkum. Fyrirtækin í Vestmannaeyjum hafa borið gæfu til að sameinast og stækka innan þess kerfis sem komið var á. �?á hafa útgerðir í Eyjum verið áræðnar í kaupum á aflaheimildum og styrkt sig á þann máta. �?ess vegna er blómleg útgerð í Vestmannaeyjum í dag.
Dýrt fyrir Eyjar
Við Eyjamenn höfðum það hinsvegar gott í því kerfi sem áður var. Breytingin var ekki gerð að okkar beiðni. Herkostnaðinn af hagræðingunni greiddum við Eyjamenn með um 20% af íbúafjölda Eyjanna. Okkur fækkaði einfaldlega úr 5000 í 4000 vegna breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu. �?að voru högg sem við eigum langt í land með að jafana okkur af. �?að er ekki freklegt að ætlast nú til að fá svigrúm til að byggja upp eftir það högg.
Tækifæri
Núna loks er sóknarfæri í sjávarútvegi. Efling þeirra fáu -en sterku- útgerða sem eftir eru í Vestmannaeyjum mun drífa frekari vöxt samfélagsins í Eyjum. �?ótt við söknum margs úr gamla kerfinu svo sem fjölda starfa, fjölbreytni fyrirtækja, dreifðu eignhaldi og fl. þá er það ekki vilji okkar að brjóta spunastólana og hverfa til liðins tíma. Við vitum sem er að sjávarútvegur ef að breytast. Nýsköpun er að vaxa, laun að hækka og sérhæfing að aukast.
Nú þarf svigrúm til vaxtar
Við viljum að atvinnulíf okkar fái að dafna í friði og þeim stöðum sem tóku á sig þyngstu höggin (sjávarbyggðir á landsbyggðinni) verði hlíft við frekari skerðingu. Nú þurfum við svigrúm, og í sumum tilvikum stuðning, til að efla sjávarbyggðir.

Nýjustu fréttir

Áfram ÍBV
Varðskip danska sjóhersins í heimsókn í Eyjum
Ríkið gæti komið að Eyjagöngum með ábatagreiðslum
Samrýmdir og samhentir Betelbræður 
Íslendingur vann tæpar 65 milljónir í EuroJackpot
Hafsbotnsmælingar vegna Eyjaganga hefjast í næstu viku
Baldur snýr aftur í Breiðafjörð þegar Herjólfur verður kominn í lag
Kristrún ánægð með heimsókn til Vestmannaeyja

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.