Auknar öryggisreglur í höfninni
Horft yfir Vestmannaeyjahöfn af Heimakletti. Gamla vatnslögnin við Sprönguna sér Básaskersbryggju, Bæjarbryggju og Nausthamri fyrir ferskvatni.

Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs í gær var eitt erindi á dagskrá þar sem skemmtiferðaskip og leyfi fyrir slöngubáta voru tekin fyrir.

Í fundargerð segir að hafnarstjóri hafi farið yfir stöðuna varðandi sjósetningu slöngubáta og kajaka frá skemmtiferðaskipum.

Niðurstaða ráðsins er sú að hafnarstjórn fer með yfirstjórn Vestmannaeyjahafnar þ.m.t. öryggismál innan hafnar sbr. m.a. 4. gr. Hafnalaga nr. 61/2003 sem og Hafnarreglugerð fyrir Vestmannaeyjahöfn nr. 1030/2012 með síðari breytingum.

Vestmannaeyjahöfn er tiltölulega lítil höfn en mikil umferð er um hana, sérstaklega yfir sumartímann. Í því skyni að gæta að öryggi notenda Vestmannaeyjahafnar þá veitir hafnarráð leyfi til notkunar eins slöngubáts frá hverju skemmtiferðaskipi innan Vestmannaeyjahafnar, innri sem ytri hafnar. Það er skilyrði að slöngubátar séu búnir AIS staðsetningarbúnaði auk annars öryggisbúnaðar sem kveðið er á um í leyfi til siglinga sem og að þeir tilkynni sjósetningu til starfsmanna hafnarinnar. Leyfi þetta veitir ekki leyfi til að sigla að kvíum Beluga hvala eða nýta mannvirki sem þar eru á nokkurn hátt enda í eigu einkaaðila.

Skemmtiferðaskip hafa ekki heimild til að sjósetja kajaka innan Vestamannaeyjahafnar þar sem mikil umferð er innan hafnar. Í þeim tilvikum þegar verið er að ferja fólk í land með tenderbátum/slöngubátum þá gilda þessar reglur ekki. Það á eingöngu við þegar farið er með fólk frá skemmtiferðaskipi beint að tenderbryggju.

Leyfi þetta er heimilt að endurskoða án fyrirvara ef notkun framangreindra slöngubáta torveldar eðlilega hafnarstarfsemi eða leggur öryggi sjófarenda í hættu. Þessar reglur eru settar til að auka öryggi sjófarenda í Vestmannaeyjahöfn.

Nýjustu fréttir

„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.