Hipsumhaps á Þjóðhátíð

Hljómsveitin Hipsumhaps mun koma fram á Þjóðhátíð í ár, þetta kom fram í tilkynningu frá samfélagsmiðlum þjóðhátíðar í dag. Tilkynnt hefur verið um fjölda listamanna á hátíðinni síðustu vikur og bætist Hipsumhaps nú í þann hóp sem mun skemmta þjóðhátíðargestum í sumar. Hipsumhaps á þekkta slagara á borð við LSMLÍ (Lífið sem mig langar í), […]

Fólk hvatt til að tryggja sér miða í forsölu

Stefnt er að því að halda tónleika með SSSÓL í Höllinni föstudaginn 5. júní í tilefni sjómannadagshelgarinnar. Miðasalan hefur hins vegar farið hægt af stað og sendi Höllin nýverið frá sér tilkynningu þar sem fólk er hvatt til að tryggja sér miða í forsölu ætli það sér að mæta á tónleikana. Samkvæmt tilkynningunni hefur forsalan […]

Leikfélagið með spunasýningu

Leikfélagið stendur fyrir spunasýningu á morgun fimmtudaginn 29. maí, en þetta er þeirra þriðja sýning af þessu tagi. Um er að ræða svokallað improv eða spunaleikhús þar sem ekkert efni er skrifað eða æft fyrirfram. Persónur, samtöl og sögur verða til í augnablikinu og geta áhorfendur jafnvel haft áhrif á gang sýningarinnar með hugmyndum úr […]

Mugison með tónleika á Skansinum

Mugison verður með tónleika við Skansinn næstkomandi laugardag kl 15. Gestir eru hvattir til að taka með sér útilegusstóla svo hægt verði að skapa skemmtilega og afslappaða stemningu við Skansinn með Heimaklett í bakgrunni. Tónleikarnir verða með óhefðbundnu sniði þar sem áhersla verður lögð á að fólk njóti tónlistar og umhverfisins saman á einum fallegasta […]

Staða mála hjá Herjólfi

Herjólfur hefur sent frá sér tilkynningu um stöðu helstu mála er varða siglingar Herjólfs IV, dýpkun í Landeyjahöfn, viðgerð á mótor skipsins og stöðu varaskips. Tilkynningin var birt í dag og má sjá hér fyrir neðan: Því miður eru ekki mikið að frétta síðan 11. maí. Bókunarkerfið er komið í lag, en af öðrum málum […]

Lára Skærings er óhrædd við að prófa nýja hluti  

Það er fátt sem veitir Láru Skæringsdóttur meiri innblástur en að ferðast, upplifa nýja staði og kynnast ólíkri menningu. Hún hefur mikla ástríðu fyrir því að takast á við ný ævintýri, hvort sem það er í gegnum ferðalög, heilsurækt eða nýja upplifun. Nýverið sneri hún heim úr heilsuferð á Tenerife sem hún fór í ásamt eiginmanni sínum, […]

Hlustaðu á þjóðhátíðarlagið 2026

Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör sjá um þjóðhátíðarlagið í ár og var lagið frumflutt í beinni útsendingu í morgun á FM957. Að þeirra sögn vildu þau fanga þá einstöku tilfinningu sem myndast þegar fólk er á leiðinni í dalinn á þjóðhátíð. Þau segjast strax hafa verið sammála um í hvaða átt þau vildu fara með […]

Kvennakórinn heldur vortónleika

Kvennakór Vestmannaeyja heldur vortónleika í Safnaðarheimili Landakirkju í kvöld og hefjast þeir klukkan 20:00. Kórinn flytur fjölbreytt lög í léttum og vorlegum anda undir stjórn Kitty Kovács, sem jafnframt sér um undirleik. Kvennakór Vestmannaeyja hefur verið virkur þátttakandi í tónlistar- og menningarlífi samfélagsins og kemur reglulega fram við ýmis tilefni og eru vortónleikarnir orðinn hefð. […]

Kynningarfundur um verndaráætlun Surtseyjar

Drög að nýrri stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Surtsey verður kynnt á opnum fundi í Eldheimum í Vestmannaeyjum fimmtudaginn 21. maí klukkan 16:30. Fundurinn verður einnig í beinu streymi á Teams. Markmið stjórnunar- og verndaráætlunarinnar er að leggja fram stefnu um verndun svæðisins og hvernig viðhalda skuli verndargildi þess til framtíðar með það að leiðarljósi að […]

Styrkir afhentir við hátíðlega athöfn í Oddfellow – uppfært

Oddfellowstúkurnar Vilborg og Herjólfur Vestmannaeyjum afhentu í dag styrki að upphæð 20 milljónir króna til verkefna og málefna sem úthlutað hefur verið í nærsamfélaginu. Við athöfnina fluttu fulltrúar stúkanna stutt ávörp þar sem meðal annars var komið inn á mikilvægi þess að styðja við samfélagið í Vestmannaeyjum og leggja sitt af mörkum til góðra málefna. […]

Starfsmenn World Class vinna við lokafrágang

Starfsmenn frá World Class eru mættir til Eyja að ljúka við uppsetningu á líkamsræktarsalnum í íþróttahúsinu. Vinna er þegar hafin við gólf og í framhaldi verður farið í að koma líkamsræktartækjum fyrir í salnum. Reiknað er með að uppsetningarvinnan taki allan daginn í dag, 18. maí, og að salurinn verði tilbúinn til notkunar strax í […]

Þórunn Pálsdóttir er Eyjamaður mánaðarins

Samgöngumál lengi verið eitt stærsta hagsmunamál íbúa hér í Eyjum og hafa þau sjaldan verið eins slæm og á síðustu misserum. Fáir hafa þó látið rödd sína heyrast jafn skýrt og Þórunn Pálsdóttir, sem að undanförnu hefur verið ötul í umræðunni um bættar samgöngur milli lands og Eyja. Þórunn hefur vakið athygli fyrir beitta pistla […]

Þrjú framboð takast á um níu sæti í bæjarstjórn

Kosið verður til bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum, á morgun laugardaginn 16. maí. Þrjú framboð bjóða fram lista í kosningunum; D-listi Sjálfstæðisflokksins, E-listi Eyjalistans og M-listi Miðflokksins. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum árið 2022 hlaut Sjálfstæðisflokkurinn fjóra bæjarfulltrúa, bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey þrjá og Eyjalistinn tvo. Fyrir Heimaey býður ekki fram að þessu sinni en Miðflokkurinn kemur nýr inn í […]

Eyþór Harðarson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum

Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins, er oddviti framboðs Sjálfstæðisflokksins. Eyþór, sem er 62 ára, er giftur Laufeyju Grétarsdóttur og eiga þau tvö uppkomin börn og níu barnabörn. Hann er menntaður rafmagnstæknifræðingur frá Þýskaland og hefur áratuga reynslu úr atvinnulífi en einnig talsverða reynslu úr bæjarmálum, þar sem hann hefur verið viðloðandi þau síðastliðin átta ár. Eyþór […]

Jóhann Ingi skipar þriðja sætið á lista Miðflokksins

Jóhann Ingi Óskarsson skipar þriðja sæti á lista Miðflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hann segir atvinnulíf, húsnæðismál og samgöngur meðal mikilvægustu verkefna næstu ára og telur að styrkja þurfi grunnstoðir samfélagsins til að bæta lífsgæði íbúa. Jóhann Ingi er 29 ára fjölskyldumaður, giftur Þóreyju Helgu Hallgrímsdóttur og eiga þau tvær dætur, Ísold og Bríet. […]

Hildur Rún skipar fjórða sæti á lista Eyjalistans 

Hildur Rún Róbertsdóttir skipar fjórða sæti á lista Eyjalistans fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hún hefur verið virk í starfi listans undanfarin ár og segir áhuga sinn á stjórnmálum hafa kviknað snemma. Hildur er varabæjarfulltrúi og leikskólakennari. Í viðtali við Eyjafréttir ræðir hún meðal annars um leikskólamál, uppbyggingu í Löngulág, samgöngur og framtíðarsýn sína fyrir Vestmannaeyjar. Áhuginn […]

Nám í fiskeldisfræði opnar margar dyr  

Fiskeldi hefur vaxið hratt á Íslandi á undanförnum árum og hefur skapað ný tækifæri til náms og starfa. Hér í Eyjum er uppbygging hjá Laxey í fullum gangi og sífellt fleiri sjá framtíð í greininni. Tvö þeirra eru Gísli Hjartar og Helga Stella, sem bæði ákváðu að fara í nám í fiskeldisfræði og starfa nú […]

Fjölskylduafþreying í íþróttahúsinu

Leikhöllin í samstarfi við Vestmannaeyjabæ stendur fyrir fjölskylduafþreyingu í íþróttahúsinu á morgun, fimmtudaginn 14. maí frá klukkan 10:00 til 14:00 í Sal 1. Viðburðurinn er opinn öllum og frítt er inn. Markmiðið er að bjóða fjölskyldum að koma saman, hreyfa sig, eiga góða stund og njóta dagsins í skemmtilegri stemningu. Í boði verða boltaleikir, þrautabraut […]

Island Adventures opnar í Eyjum

Nýtt ferðaþjónustufyrirtæki hefur hafið starfsemi í Vestmannaeyjum undir nafninu Island Adventures, en fyrirtækið byggir á gömlum grunni. Undanfarið hefur verið unnið að uppbyggingu fyrir miðasölu og móttöku ferðamanna og má því segja að spennandi tímar séu fram undan hjá fyrirtækinu. Markmiðið að bjóða upp á fjölbreyttar og skemmtilegar upplifanir í Eyjum þar sem náttúra, saga […]

Minnisvarðinn vígður á morgun

Fyrri áfangi listaverks Ólafs Elíassonar við Eldfell verður vígður á morgun, þriðjudaginn 12. maí. Dagskráin hefst klukkan 16:30 í Safnahúsi með kynningu á stöðu verkefnisins. Sif Pálsdóttir landslagsarkitekt fer yfir hönnun á bílastæði og göngustígnum sem verður gerður. Klukkan 17:15 fer fram athöfn við útsýnisskálann á nýja hrauninu þar sem Ólafur Elíasson listamaður, Hanna Katrín […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.