Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni

„Ég hef verið umkringd sjómönnum alla ævi, afar mínir voru sjómenn, pabbi, bræður mínir, sonurinn, mágar og svilar. Einnig hafa tengdasynirnir reynt sjómennskuna. Eiginmaðurinn, Gylfi Sigurðsson var á sjó, en honum var gerð grein fyrir því fljótlega í okkar sambandi að ég ætlaði ekki búa með sjómanni,” segir sjómannsdóttirin, Guðrún Erlingsdóttir. ,,Sjómennska, tónlist og plötuútgáfa […]
Skólanum slitið á Stakkó

Skólaslit Grunnskóla Vestmannaeyja fóru fram á Stakkó í morgun við hátíðlega athöfn. Nemendur mættu fyrst í skólann klukkan 10:00 og gengu þaðan ásamt kennurum yfir á Stakkó þar sem skólaárinu var formlega slitið. Dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg. Skólalúðrasveit Vestmannaeyja lék fyrir gesti og nemendur í yngri bekkjum sýndu dansatriði sem þeir höfðu æft fyrir […]
Selma rifjar upp árin með Gunnari á sjó og í landi

„Ég var 17 ára þegar við Gunnar kynntumst,“ segir Selma Jóhannsdóttir, eiginkona Gunnars heitins Jónssonar, og hlær. „Við vorum kannski þroskaðri á þessum árum og aðstæður voru líka aðrar. Við gátum byggt okkur hús og fórum fyrr að heiman en krakkar gera í dag.“ Selma segir að fólk sé líka lengur í námi nú en […]
Halli Geir Evrópumeistari í sjómanni

Í maí síðastliðnum náði Eyjamaðurinn Haraldur Geir Hlöðversson frábærum árangri á Evrópumeistaramótinu í sjómanni (armwrestling), sem haldið var í Búdapest í Ungverjalandi. Mótið er haldið árlega í einhverju Evrópulandi og var þetta í 35. sinn sem það fór fram. Keppendur voru rúmlega 1300 talsins og dreifðust þeir á fjölmörg hótel í nágrenni keppnishallarinnar MTK Sportpark. Við heyrðum í Halla Geir, eins og hann […]
Sjórinn var aldrei í plönunum, segir Sigurhanna

„Við kynntumst þegar við vorum að undirbúa árshátíð í Framhaldsskólanum í mars 1989. Ég var á fyrsta ári og hann að klára. Ég var að verða 17 ára og hann 21 árs,“ segir Sigurhanna Friðþórsdóttir, eiginkona Jóns Atla. Hún segir að það hafi ekki beinlínis verið á planinu að hann færi á sjóinn. „Við bjuggum í Reykjavík. Hann hafði nýlokið […]
Sjómannadags fjör í Höllinni: myndasyrpa

Fjöldi fólks kom saman í Höllinni um helgina til að fagna sjómannadeginum með glæsilegri skemmtun þar sem góður matur, tónlist og skemmtileg dagskrá settu svip sinn á kvöldið. Gestir nutu veglegs hlaðborðs frá Einsa kalda á meðan fjölbreytt dagskrá fór fram. Veislustjóri kvöldsins var Andri Ívars og með honum á sviði voru Stebbi Jak og […]
Bræðurnir Jón Atli og Árni rifja upp árin á Ísleifi

„Ísleifur var á síld í Norðursjónum sumrin 1973 og 1974 og þá fórum við fjölskyldan út og bjuggum í Hirtshals í Danmörku, þar sem íslensku bátarnir lönduðu mikið. Ég man ekki mikið eftir þessu, enda aðeins fimm og sex ára gamall, en á leiðinni til Danmerkur var nótinni kastað og ég man eftir að karlarnir […]
Gætti vandlega að græna litnum á Ísleifunum

Margar sögur hafa verið sagðar af Ársæli Sveinssyni útgerðarmanni á Fögrubrekku og eina þeirra, um það hvernig hann eignaðist sinn fyrsta Ísleif árið 1927, sagði hann sjálfur í viðtali sem Árni Johnsen tók við hann og birtist í Lesbók Morgunblaðsins árið 1968. „Ég fór til Reykjavíkur til að ganga frá kaupunum og þar sem ég […]
Sjómannadagskrá laugardags

Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur á morgun með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Boðið verður upp á skemmtun, leiki, dorgveiðikeppni og fjölskyldufjör yfir daginn. Kvöldið endar með veglegri sjómannadagsskemmtun og balli í Höllinni. Dagskrá 6. júní 11:00 Dorgveiðikeppni SJÓVE og Sjómannadagsráðs á Naust- hamars bryggju. Vegleg verðlaun, stærsti fiskur, flestir fiskar o.fl. Svali og prins póló […]
Sjómannskonur: Ásta Jóna

Sjómannslífið er stór partur af samfélaginu í Vestmannaeyjum og þekkja margir hvernig það er að eiga maka sem vinnur á sjó. Í tilefni sjómannadagsins fengu Eyjafréttir nokkrar sjómannskonur til að svara nokkrum spurningum um lífið með sjómanni, hvernig fjölskyldulífið gengur fyrir sig, kostunum og göllunum við starfið og hefðum tengdum sjómannadeginum. Fjölskylda? Eiginmaður Sveinbjörn Óðinsson, […]
Sjómannskonur: Harpa Hjartardóttir

Sjómannslífið er stór partur af samfélaginu í Vestmannaeyjum og þekkja margir hvernig það er að eiga maka sem vinnur á sjó. Í tilefni sjómannadagsins fengu Eyjafréttir nokkrar sjómannskonur til að svara nokkrum spurningum um lífið með sjómanni, hvernig fjölskyldulífið gengur fyrir sig, kostunum og göllunum við starfið og hefðum tengdum sjómannadeginum. Fjölskylda? Gift Daníel Andra […]
Sjómannskonur: Birna Karen

Fjölskylda? Maðurinn minn er Leó Snær Sveinsson. Við eigum 3 börn, þau Baltasar Hrafn, Hrafntinnu Rós og Gabríel Hrafn. Hversu lengi hefur þú verið sjómannsfrú? Síðan 2018. Á hvaða skipi er maki þinn? Hann er stýrimaður á Vestmannaey. Kynnist þið þegar maki er á sjó? Nei, við kynntumst þegar hann fór í viðskiptafræði í HR. […]
Sjómannskonur: Guðbjörg Erla

Fjölskylda? Ágúst Halldórsson er maðurinn minn og við eigum þrjú börn. Þau eru Emilíana Erla 19 ára, Sveinn Jörundur 13 ára og Rebekka 9 ára. Hversu lengi hefur þú verið sjómannsfrú? Á okkar 21 árum saman þá hefur Ágúst verið sjómaður í ca 16 ár myndi ég áætla. Á hvaða skipi er maki þinn? Hann […]
Vel heppnuð fimleikasýning

Hin árlega vorsýning Fimleikafélagsins Ránar fór fram í dag og var vel sótt. Þema sýningarinnar í ár var Barbie og setti það skemmtilegan svip á viðburðinn. Nemendur frá 1. bekk og upp úr sýndu afrakstur vetrarins með fjölbreyttum og glæsilegum atriðum sem endurspegluðu þá vinnu og æfingar sem lagðar hafa verið í starfið síðustu mánuði. […]
Krakkarnir á Víkinni fögnuðu útskrift

Krakkarnir á Víkinni útskrifuðust við hátíðlega athöfn í gær. Í dag fór hluti útskriftarhópsins í útskriftarferð þar sem krakkarnir nutu samveru og gæddu sér á ís frá Klettinum. Ferðin tókst vel og var mikið fjör hjá krökkunum. Útskriftin markar lok mikilvægs kafla í lífi barnanna en í haust taka við ný ævintýri þegar grunnskólagangan hefst. […]
Vorsýning fimleikafélagsins í dag

Fimleikafélagið Rán heldur sína árlegu vorsýningu í dag, 4. júní klukkan 16:00. Þema sýningarinnar í ár er „Barbie“ og munu nemendur frá 1. bekk og upp úr sýna afrakstur vetrarins. Búast má við flottri sýningu eins og undanfarin ár og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og sýna krökkunum stuðning. (meira…)
Sköpunarhúsið áfram opið í sumar

Fyrsti hluti Sköpunarhússins, sem sett var á laggirnar fyrr á þessu ári, verður áfram opið í sumar fyrir ungmenni á aldrinum 13–20 ára. Markmiðið með Sköpunarhúsinu er að skapa vettvang fyrir ungt fólk til að þróa tónlistaráhuga sinn, prófa sig áfram í upptökum og kynnast tónlistarvinnslu í skapandi og öruggu umhverfi. Sköpunarhúsið sem staðsett er […]
Herjólfur frestar 8 ferða áætlun

Til stóð að Herjólfur hæfi siglingar samkvæmt sumaráætlun með átta ferðum á dag frá og með 5. júní, en þeim áformum hefur verið frestað. Ástæðan er sú að ferjan er enn í siglingum á einni skrúfu og því ekki mögulegt að halda úti fyrirhugaðri áætlun að svo stöddu. Herjólfur mun því áfram sigla samkvæmt hefðbundinni […]
Karlakór Vestmannaeyja með vortónleika

Karlakór Vestmannaeyja heldur sína árlegu vortónleika í Eldheimum fimmtudaginn 4. júní næstkomandi. Samkvæmt tilkynningu frá kórnum verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá þar sem meðal annars verða flutt hefðbundin karlakórslög, sígild Eyjalög og þekktir erlendir smellir. Markmiðið er að höfða til breiðs hóps tónleikagesta með blöndu af hefðbundnum og léttari tónum í sumaranda. Tónleikarnir hefjast klukkan […]
Hjónin Rósa og Ágúst deila áhuga á handverki

Hjónin Ágúst Erling Kristjánsson og Rósa Jónsdóttir deila sameiginlegri ástríðu fyrir handverki og skapandi vinnu sem þau sinna samhliða daglegu lífi. Þau hafa bæði þróað sinn eigin stíl í gegnum árin, þar sem Ágúst hefur lagt áherslu á smíði og hönnun nytjahluta, á meðan Rósa hefur helgað sig prjóni og skapað fjölbreyttar og vandaðar flíkur. […]