Skráning í Söngvakeppni barna hefst á morgun
Söngvakeppni barna verður á sínum stað í dalnum.

Á morgun, fimmtudaginn 2. júlí, klukkan 12:00 opnar skráning í Söngvakeppni barna á Þjóðhátíð 2026.
Skráning fer fram með Google Forms og þurfa forráðamenn því að hafa Google-reikning til að geta lokið skráningu. Hlekkur á skráningarformið verður birtur þegar skráning hefst.

Hvað þarf til að græja skráningar?
– Nafn/nöfn keppenda
– Kennitölu keppenda
– Nafn og símanúmer forráðamanns
– Hljóðskrá af laginu sem er fyrir valinu (t.d. linkur á youtube eða spotify)

Skipuleggjendur benda á að ekki verði hægt að breyta lagavali eftir 16. júlí og að engar undanþágur verði veittar. Óski þátttakendur eftir að breyta lagi fyrir þann tíma skal senda beiðni á netfang Söngvakeppni barna.

Mæting á æfingu er skilyrði fyrir þátttöku. Gera má ráð fyrir að þátttakendur fái æfingatíma með hljómsveit allt að viku fyrir Þjóðhátíð. Einnig er mælst til þess að lagaval sé þannig að hefðbundin hljómsveit geti flutt það, en forráðamenn keppninnar áskilja sér rétt til að óska eftir öðru lagi ef það reynist illframkvæmanlegt.

Við verðlaunaafhendingu verður keppendum skipt í tvo aldurshópa:
• Eldri hópur: börn fædd á árunum 2013–2017.
• Yngri hópur: börn fædd árið 2018 og síðar.

Keppendum verður raðað upp af handahófi í keppninni sjálfri sem fer fram laugardag og sunnudag á Þjóðhátíð.

Nýjustu fréttir

Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum
Heildarafli dróst saman um 29 prósent í júní
Lögregla hættir rannsókn á andlátsmálinu á Hraunbúðum
Lóðaumsókn fyrir hvítu tjöldin hafin
Herjólfur kominn í viðgerðarstopp
Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.