„Hátíðin verður með hefðbundnum hætti í ár,“ segir Erna Georgsdóttir, verkefnastjóri í menningar-, markaðs- og mannauðsmálum, þegar rætt er við hana og Súsönnu Georgsdóttur, þjónustufulltrúa á stjórnsýslu- og fjármálasviði, sem halda utan um dagskrá Goslokahátíðar í ár ásamt goslokanefnd. „Setning hátíðarinnar verður á fimmtudaginn, sem er breytingin frá því áður,“ segir Erna.
„Eins og venjulega verða margar listsýningar á hátíðinni og verða þær opnaðar á fimmtudag og föstudag. Síðan verða þær opnar alla helgina,“ segir Súsanna og einnig verða fjöldi tónlistavirðburða í boði. „Það er gaman að fá alla þessa listamenn til okkar sem flestir hafa einhver tengsl við Vestmannaeyjar,“ segir Súsanna. „Það eru líka margir nýir listamenn sem sýna á hátíðinni, fólk sem við höfum ekki séð áður. Þannig að myndlistin verður í öllum sínum fjölbreytileika. Einnig verður Heimaey, vinnu- og hæfingarstöð, verður með opið hús og það er alltaf gaman að koma til þeirra. Þar verður handverk og kerti til sölu.“
Þær segja erfitt að gera upp á milli dagskrárliða enda séu þeir bæði margir og fjölbreyttir. „Við teljum að hápunktarnir á hátíðinni séu á föstudag og laugardag,“ segir Erna en þá verður mikið fjör í miðbænum.
„Á föstudaginn býður Vestmannaeyjabær upp á og fjör á Bárustígnum. Þar verður í boði hoppukastalar, andlitsmálning, blöðrudýr, tískusýningu og Kiddi Bigfoot þeytir skífur. Á laugardageginum verður Goslokahlaup Ísfélagsins, barnadagskrá í boði Ísfélagsins ásamt kvölddagskrá á Vigtartorgi,“ segir Erna. „Þá bætist við listaflóruna Listahátíð í garðinum heima hjá Helgu og Arnóri. Trúbadorinn Aron Daði verður á Bárustíg og Drullusokkarnir sýna hjólin sín. Ekki má heldur gleyma sjóstangveiðimót Sjóvé um morguninn,“ segir Súsanna.

Þær segja það mikið tilhlökkunarefni hjá yngstu kynslóðinni að fá Björnis brunabangsa í heimsókn. „Hann verður í slökkvistöðinni á laugardagsmorguninn ásamt því að hægt verði að skoða slökkviliðsbílana,“ segir Erna.
Kvöldskemmtunin á Vigtartorgi hefst klukkan 20.45 þar sem Eyjalögin fá sinn sess í upphafi dagskrárinnar. „Svo tekur Birta Dís,, við. Þá koma strákarnir í Hoffman, síðan taka við Silli, Hákon og Andri,. Þá er komið að Jóni Jónssyni, og Sprite Zero klan og svo taka Memm og Una við og enda kvöldið með balli,“ segir Súsanna.
Þær minna á Goslokamessu á sunnudagsmorgni og sundlaugarpartý með SZK kl 12:30 en þar má búast við miklu stuði. Allar sýningar og söfn verði opin alla helgina. Íþróttirnar eiga líka sinn sess. KFS eiga leik á fimmtudaginn og karlalið ÍBV á laugardaginn og Volcano Open í golfi fer fram á föstudag og laugardag.
Veðurspáin er hagstæð og því ættu allir að geta skemmt sér vel og eignast góðar minningar frá þessari hátíð okkar, sem á sér vart sinn líka hvað varðar fjölbreytni og fjör,“ segja Erna og Súsanna að lokum.
Dagskránna í heild sinni má finna hér