Fjögur lið frá ÍBV tóku þátt á Norðurálsmótinu
Mikil gleði ríkti á Norðurálsmótinu um helgina.

Fjögur lið frá ÍBV tóku þátt á Norðurálsmótinu sem fram fór á Akranesi um helgina. Norðurálsmótið er haldið árlega og er ætlað yngstu iðkendum í fótbolta, strákum og stelpum í 7. og 8. flokki.

Alls fóru fjögur lið frá ÍBV, skipuð strákum fæddum 2018 og 2019. Mótið hófst með setningu í hádeginu á föstudag og stóð fram á sunnudag. Kvöldvakan á laugardagskvöldinu vakti mikla lukku meðal þátttakenda þar sem VÆB og Luigi sáu um að skemmta gestum.

Mikil gleði og góð stemning einkenndu helgina og lék veðrið við mótsgesti. Mótið tókst afar vel og voru bæði leikmenn og stuðningsfólk ánægð með ferðina.

Myndasyrpa frá mótinu fylgir.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.