Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Mía Mekkín
Mía Mekkín Valgeirsdóttir

Í tilefni af Goslokahátíðinni voru tekin stutt viðtöl við börn á aldrinum fimm og sex ára á Víkinni Hamarsskóla um Heimaeyjargosið og minningar sem hafa borist milli kynslóða. Markmiðið var að fá innsýn í hvað yngsta kynslóðin veit um eldgosið og hvernig hún sér fyrir sér atburðina sem mótuðu sögu Vestmannaeyja.

Nafn: Mía Mekkín Valgeirsdóttir. 

Aldur: 6 ára. 

Hefur þú farið á Goslokahátíð? Ég held ekki. Ég veit ekki hvað það er.   

Hvað veistu um eldgosið sem var einu sinni í Vestmannaeyjum? Ég hef heyrt eina sögu sem var í bók. Það var um stelpu sem að týndist í eldgosinu og svo fann hún mömmu og pabba. Ég held hún fann þau, eða ekki. Ég man það ekki alveg.  

Hefur einhver í fjölskyldunni þinni sagt þér sögur frá gosinu? Já pabbi minn.  

Hvernig heldurðu að það hafi verið að búa í Eyjum þegar gosið byrjaði? Skrýtið. Þegar ég var nýfædd þá kom eldgos, það var skrýtið.  

Hvað myndiru gera ef það kæmi eldgos? Þá myndi ég segja ,,mamma það er eldgos, komum í bílinn í Herjólf.” 

Hefurðu séð hús sem fóru undir ösku? Já ég hef séð nokkrar myndir og keyrt framhjá húsum. Þau voru gömul.  

Nýjustu fréttir

Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Mía Mekkín
Erna og Súsanna – Fjölbreytt Goslokahátíð að vanda
Þrír af okkar fremstu söngvurum syngja í Eldheimum
Komnir í þriggja vikna stopp: „Menn njóta þess í botn”
Frumraun Ennisrakaðra á spænsku
Þegar siðareglum er beitt til að forðast umræðu
Goslok: dagskrá föstudags
Fyrsta tölublað Eyjafrétta sem kemur eingöngu út á vefnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.