Leikhópurinn Lotta sýnir Litaland 
Leikhópurinn Lotta verður með sýnngu á Stakkó.

Nóg er um að vera í aðdraganda Goslokahátíðarinnar, en á morgun þriðjudag verður Leikhópinn Lotta með söngleikinn Litaland á Stakkó kl 17:00.

Leikhópurinn fagnar nú 20 ára afmæli sínu í ár og ferðast af því tilefni um landið með sýninguna, sem hefur notið mikilla vinsælda hjá fjölskyldum um land allt.

Sýningin er um klukkustund að lengd og eru gestir hvattir til að klæða sig eftir veðri, taka með sér teppi, nesti og góðan ævintýraanda. Að sýningu lokinni gefst áhorfendum einnig kostur á að taka mynd með sinni uppáhalds ævintýrapersónu.

Miðaverð er 4.900 krónur en frítt er fyrir tveggja ára og yngri. Hægt er að kaupa miða bæði á staðnum og á Tix.is. Viðskiptavinir í Stofni hjá Sjóvá fá tvo miða á verði eins.

Um sýninguna

Litaland segir frá grunnlitunum gulum, rauðum og bláum – eða Gulverjum, Rauðingjum og Bláungum. Hver litur byggir sinn eigin heim í Litalandi og í upphafi eru samskipti milli heimanna lítil, enda vill hver litur halda sig út af fyrir sig. Fljótlega dregur þó til tíðinda. Bláungar neyðast til að leita skjóls hjá Gulverjum í Gulheimum, þar sem heimur þeirra bláu er að hverfa og þeir standa eftir án samastaðar. Sú viðkvæma staða leiðir til spennandi og ófyrirsjáanlegrar framvindu. Í Rauðheimum virðist allt á yfirborðinu vera með felldu. Þar undirbúa Rauðingjar komu nýs litar sem væntanlegur er í hópinn. Rjóð, móðir hans, er þó treg til að segja frá því hver faðirinn er… kannski hefur einhver litablöndun átt sér stað í Rauðheimum?

Nýjustu fréttir

Lögregla hættir rannsókn á andlátsmálinu á Hraunbúðum
Lóðaumsókn fyrir hvítu tjöldin hafin
Herjólfur kominn í viðgerðarstopp
Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri
ÍBV og KA skildu jöfn á Hásteinsvelli
Laxey boðar til samráðs- og upplýsingafundar
Djamm Original heldur í hefðirnar  – Frá Bridgerton í aldamótastuð
Tvöfaldur leikdagur hjá ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.