Kynning á lista- og menningarstarfi í Árborg

Sveitarfélagið Árborg auglýsir eftir umsóknum um styrk til kynningar á lista- og menningarstarfi fyrir börn á aldrinum 5 – 16 ára í sveitarfélaginu. (meira…)
Tuttugu milljarðar
Mikil umræða fer nú fram um hina nýju” Grímseyjaferju. Það er alveg hreint með ólíkindum að fylgjast með þessu máli. Mistök og mistök virðast vera gegnum gangandi allt þetta mál. Kostnaður við þessa blessaða ferju mun stefna í a.m.k. 500 milljónir. Alltaf er svolítið gaman að bera tölur saman. Kostnaður við þessa ferju verður sem […]
Setja upp fjarskiptastöð í og við Knarrarósvita

Félagið Íslenskir radíóamatörar tekur þátt í alþjóðlegri vitahelgi radíóamatöra helgina 17.-19. ágúst. Þessa helgi flykkjast radíóamatörar um heim allan að vitum og í vitaskip og setja upp fjarskiptabúnað sinn þar. Þaðan hafa menn samband við aðra radíóamatöra um heim allan. (meira…)
Hvar er ég búinn að vera ?

En já, Þjóðhátíðin var snilld, ein sú best held ég bara. Allt sem VKB kom nálægt þessa hátíðina heppnaðist með eindæmum vel. Vitavígslan var snilld, djammið í tjaldinu eftir vígslu var snilld og held ég allt annað hafi bara líka verið snilld, með hápunktum eins og því þegar við stigum á svið með Logunum og […]
2. flokkur karla: Bikardraumurinn búinn
Strákarnir í 2. flokki töpuðu í gær fyrir Þórsurum í undanúrslitum bikarsins en leikurinn fór fram á Akureyri. Þórsarar leika í B-riðli en ÍBV í C-riðli og Þórsarar því taldir sigurstranglegri. Strákarnir okkar voru þó ekkert á því, mættu gífurlega vel stemmdir til leiks og gáfu Þórsurunum ekkert eftir. Leikurinn var í járnum nær allan […]
Enn metveiði í Veiðivötnum

Enn eitt aflametið var slegið í sjöundu veiðivikunni í Veiðivötnum, en þá komu á land 2.298 fiskar. Það er nálægt því að vera helmingi meiri afli en áður hefur fengist á þessum tíma sumars. (meira…)
Fyrsta lundapysjan hefur látið sjá sig

Haukur Kristjánsson kom með fyrstu lundapysjuna sem fundist hefur í Vestmannaeyjabæ á þessu ári á Náttúrugripasafnið nú eftir hádegið. Hún var mjög dúnuð en ekki var að sjá að hún hefði liðið skort því hún var feit og pattaraleg. (meira…)
Gaman á Grímsævintýri

Fjöldi fólks kom saman við Borg í Grímsnesi á laugardag þar sem fram fór hin árlega hátíð Grímsævintýri. (meira…)
Ingólfur selur Office 1

Egill Þór Sigurðsson, eigandi Office 1 keðjunnar á Íslandi, hefur keypt Office 1 verslun Ingólfs Snorrasonar á Selfossi. (meira…)
Slakt hjá KFS í gær

KFS tapaði í gærkvöldi fyrir einu af neðstu liðum A-riðils 3. deildar, KB og óhætt að segja að úrslitin hafi komið á óvart. Enda voru Eyjamenn lengst af mun betri, virkuðu sterkari aðilinn en þrátt fyrir það komust gestirnir yfir á 38. mínútu og var það eina mark hálfleiksins. Gestirnir bættu svo við þremur mörkum […]
Áhrifamikil Surtseyjarsýning
Surtsey, eyjan sem braust fram í eldgosi frá 1963 til 1967, hefur af Íslands hálfu verið tilnefnd til heimsminjaskrár UNESCO yfir náttúruminjar. Þingvellir eru einu íslensku náttúruminjarnar sem komist hafa á skránna. Í Þjóðmenningarhúsi fer nú fram merkilega margmiðlunarsýning á sögu eyjunnar. Sýningin var hönnuð af þeim Hjörleifi Stefánssyni og Þórunni Sigríði Þorgrímsdóttur fyrir Náttúrufræðistofnun […]
Frábært að finna þennan jákvæða anda frá Eyjum

Eyjar.net heldur áfram að heyra í valinkunnum Eyjamönnum varðandi hvaða möguleika þeir sjá í stöðunni með söluhagnaðinn af Hitaveitu Suðurnesja. Að þessu sinni heyrðum við í Árna Sigfússyni bæjarstjóra í Reykjanesbæ og fengum að heyra hvað hann leggur til. Spurningin er sú sama og áður: Ef þú værir bæjarstjórnin hvað myndirðu leggja til að gert yrði við […]
Hjalti Kristjánsson skipti sjálfum sér inn á

Lið KFS hefur spilað í 3.deild í sumar og sitja í 3.sæti A riðils með 20 stig. Hjalti Kristjánsson hefur verið þjálfari KFS frá sameiningu og í gærkvöldi skipti hann sjálfum sér inn á þegar markmaður KFS meiddist. Að mati Hjalta er stærsta vandamál fótboltans í eyjum er aðstöðuleysið og saknar hann þess að hafa […]
Kaffi krús til sölu

Rekstur veitingastaðarins Kaffi krús á Selfossi er auglýstur til sölu hjá Lögmönnum Suðurlandi. Núverandi eigendur, Guðmundur Annas Árnason og Hildur Sumarliðadóttir, hafa undanfarin tvö ár rekið staðinn, sem hefur jafnframt verið eini skemmtistaðurinn á Selfossi frá því í vor. (meira…)
Lést á �?orlákshafnarvegi
Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Þorlákshafnarvegi á mánudag hét Jóhannes Örn Guðmundsson og var til heimilis að Setbergi 12, Þorlákshöfn. Jóhannes var 41 árs og lætur eftir sig tvö börn, 20 ára og 5 ára. (meira…)
Reykjavíkur maraþonið

Nú hef ég ákveðið að taka þátt í Reykjavíkur maraþoninu í ár sem fram fer n.k. laugardag. Já ég held það sé kominn tími til að maður spretti úr spori. Reyndar ætla ég að fara 10 km en kannski tekur maður hálfmaraþon (21km) næst 😉 En það skemmir svo sem ekki fyrir að hægt er […]
Jón �?skar jafnaði á síðustu stundu

Ægir og KFR gerðu 2-2 jafntefli á Þorlákshafnarvelli í kvöld þegar liðin mættust í 13. umferð A-riðils 3. deildar karla. Jón Óskar Björgvinsson skoraði jöfnunarmark KFR á 90. mínútu. Heil umferð fór fram í riðlinum í kvöld. (meira…)
Liðstyrkur í handboltalið ÍBV fyrir komandi tímabil.

Þorgils Orri Jónsson markvörður hefur ákveðið að spila á ný með ÍBV eftir að hafa spilað með ÍR síðasta vetur. Þorgils er að jafna sig af meiðslum og er gert ráð fyrir því að hann byrji að spila í nóvember. Hann mun í vetur æfa með Valsmönnum í Reykjavík en hann er við nám í […]
Mín fagra Heimaey

Nú er verslunarmannahelgin að renna sitt skeið og uppgjör í fullum gangi um hvaða skipulagða hátíð sigraði ofbeldis- og fíkniefnakeppni fjölmiðlara. Keppnin verður líkast til ekki eins hörð nú og jafnan, því óvenjufáar stórar hátíðir voru haldnar í ár. (meira…)
Unnið að mati á tilnefningu Surtseyjar á Heimsminjaskrá UNESCO

Chris Wood, fulltrúi Alþjóða náttúruverndarsamtakanna (IUCN), er nú staddur hér á landi vegna tilnefningar Surtseyjar á Heimsminjaskrá UNESCO. IUCN gegna því hlutverki að leggja mat á umsóknir og verndun náttúruminja sem tilnefndar eru á heimsminjaskrána. Chris Wood fór til Surtseyjar í gær í fylgd fulltrúa umhverfisráðuneytisins, Umhverfisstofnunar, Náttúrufræðistofnunar Íslands og bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Frá Surtsey var […]